HeimEfnisorðSólveig Anspach

Sólveig Anspach

Sólveig Anspach verðlaunuð á César verðlaunahátíðinni

Sólveig Anspach vann til verðlauna á César verðlaunahátíðinni, uppskeruhátíð franska kvikmyndabransans. Verðlaunin vann hún ásamt Jean-Luc Gaget fyrir besta frumsamda handrit fyrir fransk/íslensku kvikmyndina Sundáhrifin. Sólveig lést langt fyrir aldur fram árið 2015 eftir baráttu við krabbamein.

„Sundáhrifin“, „Ransacked“, „Pale Star“ og „InnSæi“ sýndar áfram í Bíó Paradís

Fjórar íslenskar kvikmyndir sem frumsýndar voru á RIFF halda áfram í sýningum í Bíó Paradís. Þetta eru heimildamyndirnar Ransacked og InnSæi ásamt bíómyndunum Sundáhrifin og Pale Star.

Morgunblaðið um „Sundáhrifin“: Straumhvörf og hrífandi slembilukka

Hjördís Stefánsdóttir skrifar um Sundáhrifin Sólveigar Anspach í Morgunblaðið í dag, en myndin er frumsýnd á RIFF en verður svo tekin til sýninga í Bíó Paradís. Hjördís gefur myndinni fjóra og hálfa stjörnu og segir að í henni bjóðist "áhorfendum að flandra um með persónum í töfrandi söguheimi þar sem einlægar tilfinningar ráða för og duttlungafullt háttalag leiðir tíðum til spaugilegra árekstra."

Sólveigar Anspach minnst

Vefurinn No Film School birtir einlæga vídeó-hugleiðingu kvikmyndaunnandans Scout Tafoya um leikstýruna Sólveigu Anspach, en þau voru kunningjar. Sólveig lést í fyrra, en síðasta mynd hennar, Sundáhrifin, var verðlaunuð á nýliðinni Cannes hátíð.

Hjartnæm stund á Cannes

Börkur Gunnarsson skrifar fyrir Morgunblaðið um móttökur síðustu myndar Sólveigar Anspach, Sundáhrifanna á Cannes hátíðinni, þar sem hún hlaut SACD verðlaunin fyrir bestu frönskumælandi myndina í Director's Fortnight dagskránni.

„Sundáhrifin“ verðlaunuð á Cannes hátíðinni

Sundáhrifin, hin fransk/íslenska gamanmynd Sólveigar Anspach heitinnar, vann á föstudagskvöld til SACD verðlaunanna fyrir bestu frönskumælandi kvikmynd á lokahófi Director‘s Fortnight dagskrárinnar á Cannes.

Screen um „Sundáhrifin“: Viðkunnanleg en sérviskuleg

Jonathan Romney hjá Screen fjallar um Sundáhrifin Sólveigar Anspach sem sýnd er á Cannes hátíðinni og segir hana viðkunnanlega en sérviskulega rómantíska kómedíu sem ekki sé allra en beri skýr einkenni höfundar síns.

„Sundáhrifunum“ vel tekið á Cannes

Sundáhrifin, frönsk-íslensk kvikmynd Sólveigar Anspach heitinnar, var heimsfrumsýnd þann 17. maí á Cannes kvikmyndahátíðinni sem hluti af Director‘s Fortnight dagskránni og hlaut afar góðar viðtökur. Myndin var sýnd fyrir smekkfullum sal og að sýningu lokinni risu áhorfendur úr sætum sínum og veittu aðstandendum langt lófatak.

The Hollywood Reporter um „Sundáhrifin“: Sæt og einlæg

Hollywood Reporter fjallar um mynd Sólveigar Anspach, Sundáhrifin (L'Effet aquatique/The Together Project), sem nú er sýnd á Director's Fortnight í Cannes og segir hana afar sjarmerandi litla mynd.

Zik Zak með Sólveigu og Ísold í Cannes

Zik Zak kvikmyndir er meðframleiðandi að mynd Sólveigar heitinnar Anspach, Sundáhrifin (The Together Project), sem sýnd er á Director's Fortnight í Cannes. Zik Zak kynnir einnig verk Ísoldar Uggadóttur, Andið eðlilega, sem fer í tökur í september.

Íslendingar koma að tveimur myndum á Cannes í ár

Íslendingar koma við sögu í tveimur þeirra kvikmynda sem valdar hafa verið á Cannes hátíðina í maí. Önnur er í aðalkeppninni og hin í Director's Fortnight.

Minning | Sólveig Anspach 1960-2015

Sólveig Anspach kvikmyndaleikstjóri lést í gær, 7. ágúst, 54 ára að aldri. Banamein hennar var krabbamein. Sólveig hafði nýlokið tökum á nýjustu bíómynd sinni, Sundáhrifin (L'effet aquatique), á Íslandi og í Frakklandi þar sem hún bjó lengst af ævinnar.

Tökum lokið á mynd Sólveigar Anspach, „Sundáhrifin“

Tökum á kvikmynd Sólveigar Anspach, Sundáhrifin eða L‘effet Aquatique, er lokið í Reykjavík. Áætlað er að frumsýna myndina snemma árs 2016.

Íslenskar kvikmyndir í sviðsljósinu í Gautaborg

Íslenskri kvikmyndagerð verður gert hátt undir höfði á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Gautaborg. Hátíðin, sem nú er haldin í 37. skipti, hófst síðastliðinn föstudag og lýkur þann 3. febrúar. Alls verða 13 íslenskar kvikmyndir sýndar á hátíðinni.

„Nakin Lulu“ Sólveigar Anspach gengur vel í Frakklandi

Mynd kvikmyndaleikstjórans íslenska, Sólveigar Anspach, Lulu Femme Nue, eða Nakin Lulu, er að slá rækilega í gegn í Frakklandi þessa dagana.

Sólveig Anspach á RIFF

Kvikmynd Sólveigar Anspach, Nakin Lulu (Lulu in the Nude), er hluti af dagskrá  RIFF sem lýkur nú um helgina. Sólveig átti einnig mynd á...
spot_imgspot_img

NÝJUSTU FÆRSLUR