„Sundáhrifunum“ vel tekið á Cannes

Sundáhrifin2Sundáhrifin, frönsk-íslensk kvikmynd Sólveigar Anspach heitinnar, var heimsfrumsýnd þann 17. maí á Cannes kvikmyndahátíðinni sem hluti af Director‘s Fortnight dagskránni og hlaut afar góðar viðtökur. Myndin var sýnd fyrir smekkfullum sal og að sýningu lokinni risu áhorfendur úr sætum sínum og veittu aðstandendum langt lófatak.

Ýmsir aðstandendur myndarinnar voru viðstaddir sýninguna, m.a. Skúli Fr. Malmquist framleiðandi og Didda Jónsdóttir leikkona ásamt aðalleikurunum Florence Loiret Caille og Samir Guesmi, framleiðandanum Patrick Sobelman og öðrum handritshöfundi myndarinnar Jean-Luc Gaget.

Sundáhrifin er ein af aðeins 18 myndum sem voru valdar til þátttöku í Director‘s Fortnight í ár.

Sama dag og heimsfrumsýningin átti sér stað fór einnig fram sérstök blaðamannasýning með spurt og svarað eftir sýninguna. Þar var einnig fullt út úr dyrum og voru Didda Jónsdóttir, Florence Loiret Caille, Samir Guesmi, Patrick Sobelman og Jean-Luc Gaget spurð spjörunum úr.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR