[Stikla, plakat] VILLLIBRÁÐ frumsýnd 6. janúar

Stikla kvikmyndarinnar Villibráð eftir Elsu Maríu Jakobsdóttur hefur verið opinberuð. Myndin kemur í bíó 6. janúar næstkomandi.

Vísir birtir stikluna og segir svo frá:

„Í matarboði í Vesturbænum ákveða sjö vinir að fara í stórhættulegan samkvæmisleik. Viðstaddir leggja símana á borðið og fallast á að öll símtöl og skilaboð sem berast verði deilt með samkomunni til að sanna að ekkert þeirra hafi nokkuð að fela,“ segir um söguþráð myndarinnar sem verður frumsýnd þann 6. janúar.

Hér að neðan má sjá fyrsta brot úr þessari stórhættulegu gamanmynd. Stiklan er klippt af Hannesi Þór Halldórssyni.

Rjómi íslenskra leikara samankominn
Um er að ræða endurgerð af ítölsku verðlaunakvikmyndinni Perfetti Sconoscuti eða Perfect Strangers, sem kom út árið 2016. Myndin hefur verið endurgerð átján sinnum og komst hún því í Heimsmetabók Guinness.

Íslenska handritið skrifaði leikskáldið Tyrfingur Tyrfingsson, ásamt Elsu Maríu.

Með stærstu hlutverk fara Aníta Briem, Björn Hlynur Haraldsson, Gísli Örn Garðarsson, Hilmar Guðjónsson, Hilmir Snær Guðnason, Nína Dögg Filippusdóttir og Þuríður Blær Jóhannsdóttir.

Myndin var framleidd af Þóri Snæ Sigurjónssyni, Ragnheiði Erlingsdóttur og Arnari Benjamín Kristjánssyni fyrir Zik Zak kvikmyndir í samstarfi við Scanbox Entertainment.

Ómar Örn Hauksson hannaði plakatið.
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR