SUMARLJÓS nálgast fjórða þúsundið

Sumarljós og svo kemur nóttin fékk 570 gesti í vikunni.

Heildaraðsókn nemur alls 3,600 gestum eftir fimmtu helgi. Myndin er áfram í fimmta sæti.

Abbababb! er áfram í sjöunda sæti aðsóknarlistans. 204 sáu myndina í vikunni, en myndin hefur nú alls fengið 11,782 gesti eftir níundu helgi.

Band er í 12. sæti eftir aðra helgi. 142 sáu hana í vikunni. Heildaraðsókn nemur 396 gestum.

Svar við bréfi Helgu er 16. sæti eftir 11. helgi. 97 sáu myndina í vikunni, en heildarfjöldi nemur nú 9,575 gestum.

Svartur á leik (2012), er í sýningum vegna 10 ára afmælis. Myndin fékk 325 gesti í vikunni og nemur heildaraðsókn því 66,649 gestum. Hún er í 20. sæti aðsóknarlistans.

Aðsókn á íslenskar myndir 7.-13. nóv. 2022

VIKUR MYND AÐSÓKN (SÍÐAST) ALLS (SÍÐAST)
5 Sumarljós og svo kemur nóttin 570 (658) 3,600 (3,030)
6 Svartur á leik (endursýnd) 325 (201) 66,649 (66,324)
9 Abbababb! 204 (267) 11,782 (11,578)
2 Band 142 (254) 396 (254)
11 Svar við bréfi Helgu 97 (135) 9,575 (9,478)

(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR