Væntanleg bíómynd Baldvins Z, HAFIÐ ER SVART, kynnt á Cannes

Baldvin Z undirbýr nú gerð bíómyndarinnar Hafið er svart. Breska sölufyrirtækið Rocket Science fer með sölu verksins á heimsvísu en verkið verður kynnt mögulegum fjármögnunaraðilum á kvikmyndahátíðinni í Cannes síðar í mánuðinum.

Deadline skýrir frá. Þar kemur fram að myndin sé klástrófóbískt drama sem gerist um borð í togara á N-Atlantshafi. Fylgst er með ungum háseta í sinni fyrstu ferð sem þurfi að heyja baráttu upp á líf og dauða við óblíð náttúröflin ásamt öðrum í áhöfninni.

Margar af helstu stórkanónum íslenskra leikara af karlkyni munu koma fram í myndinni, þar á meðal Baltasar Kormákur, Ingvar E. Sigurðsson, Ólafur Darri Ólafsson, Þorsteinn Bachmann, Björn Hlynur Haraldsson og Þorvaldur Kristjánsson.

Handritið skrifar Hatara-meðlimurinn Matthías Tryggvi Haraldsson. Baldvin Z framleiðir fyrir Glassriver ásamt Guðjóni Arngrímssyni. Christine Haebler hjá kanadíska framleiðslufyrirtækinu Terminal City Pictures verður meðframleiðandi.

HEIMILDDeadline
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR