Fallax hefst á því að tveir einstaklingar, E og Blár, flýja fangelsi sem er staðsett úti á landi á Íslandi. Bílstjóri kemur og nær í þau. Þau lenda síðan í árekstri og eyðileggja bílinn. Þau vilja fela slóðina sína fyrir yfirvöldum og ákveða því að ýta bílnum út í sjó áður en þau halda ferðinni áfram fótgangandi. Þau rekast á rústir sveitabæjar, koma sér fyrir og skiptast á að gæta að lögreglunni. Nóttin skellur á og þau sofa í rústum bæjarins. E vaknar skyndilega og uppgötvar að hin eru horfin. E leitar á svæðinu en sér engin merki um þau. Skyndilega birtist skært dansandi ljós fyrir framan E. Það leiðir E að stórum náttúrulegum hver. E fer ofan í en dregst undir af öflugum krafti.
Hverinn er gátt að óvenjulegum heimi þar sem tíminn tifar öðruvísi. E kannar þennan skemmtilega en hættulega heim og eftir að hafa næstum drukknað í fossi finnur E bæjarrústirnar aftur. Þar hittir E veru sem tekur á sig lögun E áður en þau kastast frá hvort öðru. Annað þeirra flýtur aftur upp hverinn í raunverulega heiminum, en hitt verður eftir í hulduheimi.
Owen Hindley er leikstjóri en hugmynd og saga er eftir Huldufugl og Hikapee, sem einnig framleiða ásamt GunHil. Nanna Gunnars hjá Huldufugl er aðalframleiðandi. Útlit, hönnun persóna og þrívíddarumhverfis er í höndum Simone Tranchina.













