Tvö íslensk teiknimyndaverk verða sýnd á Annecy International Animation Film Festival sem stendur yfir í Frakklandi 21.-27. júní. Um er að ræða stuttmyndina Sundruð í leikstjórn Fan Sissoko og sýndarveruleikaverkið Fallax eftir Owen Hindley. Framleiðsla beggja verka er styrkt af Kvikmyndamiðstöð Íslands og kynning þeirra í Annecy sömuleiðis.
Fyrsta íslenska sýndarveruleikamyndin er komin út og hefur verið að þræða ýmsa hátíðir á undanförnum mánuðum. Verkið nefnist Fallax og verður til sýnis í Bíó Paradís um hvítasunnuhelgina næstkomandi.