Marín var fædd 7. desember 1950. Hún lést í Danmörku þann 16. maí síðastliðinn, en þar hafði hún búið í mörg ár.
Marín var framleiðandi, framkvæmdastjóri og skrifta í ýmsum kvikmyndum og sjónvarpsmyndum á níunda og tíunda áratug síðustu aldar. Hún var framkvæmdastjóri í bíómynd Hilmars Oddssonar, Eins og skepnan deyr (1986) og aðstoðaði við framleiðslu Foxtrot (1988) eftir Jón Tryggvason. Hún var framleiðslustjóri sjónvarpsmyndarinnar Englakroppar (1989) eftir Friðrik Þór Friðriksson, framleiðandi sjónvarpsmyndar Egils Eðvarðssonar Steinbarn (1989) og skrifta í Ryði (1990) eftir Lárus Ými Óskarsson og Svo á jörðu sem á himni (1992) eftir Kristínu Jóhannesdóttur.
Klapptré sendir aðstandendum og vinum innilegar samúðarkveðjur.













