Í umsögn segir:
Ormhildarsaga er bæði vönduð og frumleg myndasaga en það sem gerir söguna einstaka er að í henni fáum við að sjá íslenskt umhverfi í alveg nýrri mynd. Jöklar hafa bráðnað og flæðamálið hækkað svo nú er Breiðholt til dæmis kallað Breiðholtseyja. Sagan er vönduð, frumleg og spennandi. Teiknimyndaþættirnir eru að sama skapi metnaðarfullt verkefni þar sem um er að ræða 26 þætti og hver þáttur er 22 mín. Sagan inniheldur fjöldann allan af íslenskum kynjaverum og kynnir þær þannig fyrir nýjum kynslóðum, hér má td nefna nátttröll, dverga, múshval og nykur. Loks eru aðalhetjurnar hópur af fjölbreyttum kvenskörungum með sína ólíku styrkleika. Við bíðum spennt eftir að fylgjast með Ormhildi og hennar ævintýrum í framtíðinni.
Ormhildarsaga, sem verið hefur í sýningum á RÚV og í Þýskalandi að undanförnu, fær einnig tilnefningu til Sagna – verðlaunahátíðar barnanna. Sigurvegarar verða kunngjörðir í beinni útsendingu á RÚV þann 30 maí.













