RIFF skipar ráðgjafaráð

RIFF hefur skipað ráðgjafaráð, hvers hlutverk er að styrkja og styðja við starfsemi RIFF með því að vera til ráðgjafar og hafa þannig áhrif á dagskrá og starfsemi hátíðarinnar.

Ráðið skipa þau Ingvar E. Sigurðsson, Elísabet Ronaldsdóttir, Andri Snær Magnason, Yrsa Roca Fannberg, Margrét Örnólfsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson og Guðmundur Arnar Guðmundsson.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá RIFF og þar segir einnig:

Um leið getur starfsfólk hátíðar leitað til ráðsmanna eftir sérþekkingu, ráðum eða hugmyndum eða borið undir þá dagskrá og fengið álit þeirra. Jafnframt er ráðsmönnum frjálst og þeir hvattir til að koma með hugmyndir að dagskrá eða öðru því sem gæti orðið starfsemi Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík til framdráttar.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR