Jóhannes Haukur mun leika víking í THE BERSERKER

Anna G. Magnúsdóttir hjá Film Partner Iceland, ásamt sænsku fyrirtækjunum LittleBig Productions og Filmsnickeriet, hefur kynnt helstu leikara í The Berserker, víkingaspennumynd sem sænski leikstjórinn Johan Bromander skrifar og leikstýrir.

Verkið mun kosta 3 milljónir evra eða rúmar 430 milljónir króna. Stefnt er að tökum á Íslandi sumarið 2027 og frumsýningu í kvikmyndahúsum 2028. Verkið var kynnt í Cannes á dögunum.

Aðstandendur lýsa verkinu sem „Unforgiven mætir The Northman.“ Sagan gerist á Englandi 1085, þegar Vilhjálmur sigursæli lætur gera manntal og eignaskrá yfir allt ríki sitt (Domesday bókin). Jóhannes Haukur Jóhannesson mun leika aðalhlutverkið, Harald berfætta, víking  sem hefur dregið sig í hlé frá heiminum og vill vera í friði með sjóði sína og bátinn sem hann er að smíða fyrir ferð sína til Valhallar. Frank Lammers (Undercover, Ferry) leikur Vilhjálm sigursæla og Oscar Skagerberg (Beck, The Last Kingdom) leikur Leif, vin Haralds og samherja.

Sagan hefst þegar Vilhjálmur fyrirskipar gerð Dómsdagsbókarinnar. Kirkjunni er falin framkvæmd verksins og sendir munka út í ystu afkima ríkisins. Saga, skarpskyggn ungur danskur þjófur, fylgir einum þeirra að húsi Haraldar berfætts, sem hefur ekki hug á að skrá sig og eignir sínar. Hann hendir munkinum öfugum út en Saga verður eftir. Saman þurfa þau að takast á við ófyrirleitna útsenda Vilhjálms sigursæla.

Cineuropa fjallar frekar um verkefnið.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR