Samkvæmt samningnum getur fjárframlag lúxemborgska eða íslenska samframleiðandans verið á bilinu tíu til níutíu prósent fyrir hverja samframleiðslu. Verk sem þróuð eru innan þessa ramma verða viðurkennd sem innlend framleiðsla bæði í Lúxemborg og á Íslandi. Auk þess er samframleiðendum skylt að leggja fram tæknilegt og listrænt framlag í réttu hlutfalli við fjárhagslega þátttöku sína. Tæknilega og listræna framlagið samanstendur af samanlagðri hlutdeild listrænna aðila, flytjenda, tækni- og framleiðsluteyma, auk notkunar á kvikmyndaverum og annarri aðstöðu. Samningurinn mun taka gildi til fimm ára í senn til að byrja með.
Samningurinn var undirritaður af Gísla Snæ Erlingssyni, forstöðumanni Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, og Guy Daleiden, framkvæmdastjóra Kvikmyndasjóðs Lúxemborgar, að viðstöddum Eric Thill, menningarmálaráðherra Lúxemborgar. Gildissvið samningsins nær til hvers kyns hljóð- og myndefnis, óháð tegund og formi, þar á meðal kvikmynda í fullri lengd, þáttaraða og verka byggðum á stafrænni tækni, svo sem gagnaaukinna verka, sem ætluð eru fyrir hvers konar dreifingarleiðir.
Lúxemborg og Ísland eiga nú þegar í virkum og árangursríkum samskiptum innan kvikmyndageirans. Tvær samframleiðslur standa nú yfir: 200 Kópavogur, í leikstjórn Gríms Hákonarsonar og samframleidd af Sarimar Films (ÍS), Iris Productions (LU), June Films (FR) og Profile Pictures (DK); og Maðurinn í kompunni, í leikstjórn Maríu Sólrúnar og samframleidd af Red Lion (LU), Sagafilm Productions (ÍS) og Wunderlust (DE).
Auk þess á Kvikmyndahátíðin í Lúxemborg í nánu samstarfi við Stockfish-hátíðina í Reykjavík. Bæði Ísland og Lúxemborg eru öflug og reynd samframleiðslulönd með aðgang að helstu evrópsku stuðningskerfum eins og Creative Europe og Eurimages.
„Ég er himinlifandi að sjá þennan samning verða að veruleika og er fullviss um að hann muni vekja enn meiri áhuga hjá framleiðendum okkar á að horfa lengra út fyrir landsteinana með framtíðarverkefni sín og skapa ný tækifæri fyrir fagfólk í báðum löndum,“ segir Gísli Snær Erlingsson.
„Ég hef fulla trú á því að sértæk tvíhliða framtaksverkefni eins og þessi samningur geti skapað ný tengsl og fært saman kvikmyndaiðnað sem kann að vera landfræðilega fjarlægur en er náinn í gildum og reynslu,“ segir Guy Daleiden.
„Hagkerfi og aðdráttarafl Lúxemborgar hefur alltaf byggst á víðsýni, samvinnu og alþjóðlegri sýn. Undirritun dagsins í dag hrindir þeim gildum og áformum ríkisstjórnar okkar um að hvetja til alþjóðlegra samframleiðslusamninga í framkvæmd,“ segir Eric Thill menningarmálaráðherra.
Að undirritun lokinni verður samningurinn lagður fyrir þing beggja landa til fullgildingar á næstu mánuðum.
Athöfnin fór fram í Lúxemborgarskálanum á Marché du Film á kvikmyndahátíðinni í Cannes, 15. maí 2026, og í kjölfarið fylgdi tengslamyndunarviðburður þar sem kvikmyndagerðarfólk frá Íslandi og Lúxemborg kom saman.













