Kvikmyndamiðstöð Íslands kynnir nýtt merki

Kvikmyndamiðstöð Íslands (KMÍ) hefur tekið í notkun uppfært merki sem byggir á fyrra auðkenni miðstöðvarinnar. Markmiðið með uppfærslunni er að einfalda merkið og laga það að fjölbreyttri notkun á ólíkum miðlum, segir í tilkynningu.

Fyrsta kvikmyndin sem notar hið nýja merki Kvikmyndamiðstöðvar er Iceguys the Movie, sem frumsýnd er 30. október. Sjá má hreyfimyndaútgáfu með því að smella á hlekkinn að neðan.

Segir á vef KMÍ:

Við hönnunina var lögð áhersla á að varðveita sérkenni og tengingu við fyrra merki Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, en einfalda form þess svo það henti betur til notkunar í ólíkum miðlum og auka möguleika á fjölbreyttri framsetningu, meðal annars með hreyfiútgáfu.

Ramminn, sem hefur verið einkennandi fyrir merki Kvikmyndamiðstöðvar Íslands frá stofnun hennar, er áfram þungamiðja þess. Hann vísar til kvikmyndarammans og þeirra ólíku sagna og sjónarhorna sem kvikmyndir miðla.

Í nýju útfærslunni hefur form merkisins verið einfaldað með áherslu á skýra framsetningu og fjölbreytta notkunarmöguleika. Ný hreyfiútgáfa merkisins, sem undirstrikar tengingu þess við kvikmyndamiðilinn, verður birt í upphafi kvikmyndaverka sem hljóta styrk frá Kvikmyndamiðstöð Íslands.

Merkið var uppfært í samstarfi við hönnunarstofuna Simply Studio.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR