KMÍ leitar að sérfræðingi í umsýslu endurgreiðslu

Kvikmyndamiðstöð Íslands óskar eftir að ráða drífandi einstakling með faglegan styrk, metnað, frumkvæði og góða samskiptahæfni til að sinna starfi sérfræðings í umsýslu endurgreiðslukerfis vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.

Segir á vef Kvikmyndamiðstöðvar:

Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf á vettvangi íslenskrar kvikmynda- og sjónvarpsgerðar þar sem viðkomandi vinnur náið með ýmsum hagaðilum, þ.m.t. nefnd um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar, framleiðendum, umsækjendum, endurskoðendum og stjórnvöldum.

Endurgreiðslukerfið byggir á lögum nr. 43/1999 um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi og er ætlað að efla innlenda kvikmyndagerð og stuðla að alþjóðlegri framleiðslu hér á landi.

Starfið krefst nákvæmni, faglegra vinnubragða og hæfni til að vinna með fjölbreyttum hópi umsækjenda og samstarfsaðila. Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir einstakling sem hefur áhuga á kvikmyndagerð og opinberri stjórnsýslu.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Umsýsla umsókna um vilyrði og útborgun endurgreiðslna vegna kvikmyndagerðar
  • Yfirferð umsóknargagna
  • Samskipti og leiðbeiningar til umsækjenda og annarra hagaðila
  • Undirbúningur mála fyrir fundi nefndar um endurgreiðslur
  • Frágangur mála, umsýsla gagna og skjalavarsla
  • Þátttaka í þróun verklags, leiðbeininga og umbótaverkefna tengdum endurgreiðslukerfinu
  • Ýmis önnur tilfallandi verkefni á skrifstofu Kvikmyndamiðstöðvar Íslands

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Þekking eða reynsla af kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslu
  • Reynsla af yfirferð fjárhagsgagna, bókhalds eða uppgjöra
  • Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
  • Þekking eða reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Frumkvæði, nákvæmni, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Lipurð í mannlegum samskiptum og þjónustulund
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
  • Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný upplýsingakerfi

Um Kvikmyndamiðstöð Íslands:
Kvikmyndamiðstöð Íslands gegnir lykilhlutverki í íslenskum kvikmynda- og sjónvarpsiðnaði með því að veita fjármagn til framleiðslu íslenskra kvikmynda og sjónvarpsverka, kynna íslenskar kvikmyndir á alþjóðlegum vettvangi og styðja við kvikmyndamenningu á Íslandi með margskonar hætti. Kvikmyndamiðstöð Íslands leggur áherslu á lifandi og skemmtilegt starfsumhverfi með möguleika á aðkomu að fjölbreyttum og spennandi verkefnum tengdum stuðningi við kvikmyndir.

Umsóknarfrestur og nánari upplýsingar
Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Kvikmyndamiðstöð Íslands leggur áherslu á fjölbreytileika og hvetur öll áhugasöm til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar um starfið veita Sigríður Svava Sandholt (sigridur@intellecta.is) og Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) í síma 511 1225.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR