Verðlaunin voru afhent laugardagskvöldið 24. október á lokahátíð Nordic International Film Festival í New York, þar sem Freyja tók sjálf við verðlaununum. Myndin var sýnd á hátíðinni daginn áður, í Scandinavia House á Manhattan, og hlaut afar góðar viðtökur áhorfenda, segir í tilkynningu frá aðstandendum.
Póstkort segir ástarsögu foreldra Freyju, Stellu og Kristins. Þegar Kristinn gekk Jakobsveginn í fyrsta sinn, ritaði hann daglega póstkort til Stellu, samtals 46 póstkort – eitt póstkort fyrir hvert ár sem þau höfðu þekkst. Stella hafði nýlega greinst með Alzheimer sjúkdóminn og því var kærkomið að rifja upp líf þeirra saman á þennan hátt. Í gegnum póstkortin, gamlar fjölskyldumyndir og teiknimyndir, birtist áhrifamikil saga um ást, missi og minningar sem lifa áfram.
Myndin hefur vakið athygli á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum á undanförnum mánuðum. Í lok september hlaut hún aðalverðlaun dómnefndar sem besta stutta heimildarmyndin á Edmonton International Film Festival í Kanada. Með þeim sigri öðlaðist myndin þátttökurétt í keppninni um Óskarsverðlaunin árið 2027.
Fyrr á árinu hlaut Póstkort einnig tvenn Edduverðlaun, sem besta stutta heimildarmynd ársins og fyrir uppgötvun ársins.
Myndin er nú í kynningarherferð fyrir 99. Óskarsverðlaunahátíðina, en tilkynnt verður um þær 15 stuttu heimildarmyndir sem komast á svokallaðan stuttlista þann 15. desember næstkomandi.
Freyja Kristinsdóttir leikstýrir myndinni og Heather Millard framleiðir fyrir Silfurskjá.













