Heimildamyndin Póstkort eftir Freyju Kristinsdóttur hlaut um síðustu helgi verðlaun sem besta stutta heimildarmyndin á Nordic International Film Festival í New York. Þetta eru önnur alþjóðleg verðlaun myndarinnar á innan við mánuði, en hún er nú í keppni um tilnefningu til Óskarsverðlaunanna 2027.