Myndin fjallar um Arnór, ungan mann sem hlotið hefur erfitt hlutskipti í lífinu með alkóhólískan föður og móður sem berst við geðrænan sjúkdóm. Er hann reynir að finna sjálfan sig leiðist hann út í fíkniefnaneyslu og kynnist misjöfnu fólki sem leiða hann í ógöngur. Hann endar á því að selja fíkniefni. Líf hans flækist svo enn meira þegar hann lendir í ástarþríhyrningi milli fíkniefnalögreglu og – sala.
Myndin hefur verið sex ár í vinnslu. Aðstandendur segja Roman Ægir fyrsta trans manninn til að leika aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd.
Ótti hefur farið á kvikmyndahátíðir víða og unnið 12 verðlaun, þar á meðal besti leikstjórinn á Asti International Film Festival. Einnig hefur hún unnið verðlaun fyrir besta leikara og bestu myndina á tveimur öðrum hátíðum.
Fjölnir Baldursson stofnaði kvikmyndahátíðina Piff (Pigeon International Film Festival) á Ísafirði og hefur leikstýrt stuttmyndum. Roman Ægir útskrifaðist úr kvikmyndatækni og er á leiklistarbraut í Kvikmyndaskólanum. Ótti er fyrsta kvikmynd þeirra í fullri lengd.














