Íslenskar tilraunakvikmyndir í kastljósinu í Sviss

Videoex, leiðandi hátíð Sviss á sviði tilraunakvikmynda og vídeólistar, mun beina kastljósinu að Íslandi þetta árið með dagskrá í umsjón rithöfundarins og kvikmyndagerðarmannsins Sjóns. Hátíðin fer fram í Zürich 22. til 31. maí.

Íslenski hlutinn ber titilinn Camera Insularis: Experimental Films From Iceland. Samkvæmt Sjón er dagskráin fyrsti áfanginn í að kortleggja sögu og fjölbreytileika tilraunakvikmynda sem tengjast Íslandi, bæði eftir íslenska kvikmyndagerðarmenn og erlenda listamenn sem hafa notað landið sem skapandi vettvang.

Á Íslandsdagskránni eru yfir 40 titlar, en hún skiptist í tíu hluta sem sýndir verða yfir hátíðina og spannar allt frá myndbandstilraunum Steinu Vasulka og Hringnum eftir Friðrik Þór Friðriksson til framúrstefnulegra stuttmynda og tónlistartengdrar kvikmyndagerðar. Meðal myndanna eru Maður og verksmiðja eftir Þorgeir Þorgeirsson, Mannvirki eftir Gústav Geir Bollason og enduruppgötvun myndarinnar Byron frá tíunda áratugnum eftir Guðmund Karl Björnsson.

Dagskráin inniheldur einnig La Cicatrice Intérieure eftir Philippe Garrel, úrval tónlistarmyndbanda sem Björk vann í samstarfi við leikstjóra á borð við Michel Gondry og Spike Jonze, auk verka eftir Jóhann Jóhannsson, Sally Potter og Erró.

Einn hlutinn er tileinkaður ferli Katrínar Ólafsdóttur og verður mynd hennar My Heart Beats In The World Of The Dead, með David Cronenberg í aðalhlutverki, heimsfrumsýnd á hátíðinni.

Kvikmyndasafn Íslands, Kvikmyndamiðstöð Íslands, Vasulka stofa Listasafns Íslands og Listasafn Reykjavíkur eru meðal samstarfsaðila Íslandshluta hátíðarinnar.

Videoex hefur verið haldin árlega í Zürich frá árinu 1998. Á tíu dögum í maí býður hátíðin upp á alþjóðlegar og svissneskar keppnisdagskrár, yfirlitssýningar, þemadagskrár, gjörninga, umræður og vinnustofur sem beina sjónum að tilraunakenndu, óhefðbundnu og sjónrænt frumlegu kvikmyndaformi.

Dagskráin spannar allt frá analóg- og handunninni filmu yfir í fundið myndefni, hreyfimyndir, heimildaverk og stafrænar tilraunir. Hátíðinni er enn stýrt af stofnanda hennar Patrick Huber og hefur hún þróast í alþjóðlega viðurkenndan vettvang fyrir bæði nýja og rótgróna listamenn, þar sem skapast samtal milli kvikmyndagerðarfólks, myndlistarmanna og áhorfenda. Videoex fer fram á ýmsum stöðum í Zürich, þar sem Kunstraum Walcheturm er aðalmiðstöð hennar ásamt kvikmyndahúsum á borð við Kino Xenix og Rote Fabrik. Á hátíðinni eru einnig veitt verðlaun fyrir framúrskarandi alþjóðleg og svissnesk verk.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR