Um þetta er fjallað hjá Nordic Film and TV News.
Danmörk setti upp slíkt menningarframlagskerfi árið 2025 sem sameinar almennt framlag og fjárfestingarhvata sem tengjast danskri framleiðslu. Noregur hefur tekið upp reglur þar sem áskilið er að streymisþjónustur fjárfesti hlutfall af tekjum beint í hljóð- og myndefni á norsku. Svíþjóð heldur áfram að skoða möguleg framlagslíkön, en Ísland er að íhuga aðgerðir sem myndu krefjast þess að streymisþjónustur styðji innlenda framleiðslu með fjárfestingum eða fjárframlögum.
Lög um menningarframlag streymisveita hafa lengi verið í undirbúningi hér á landi. Frumvarp var lagt fram á 157. löggjafarþingi (2025–2026) sem stjórnarfrumvarp (444/157) frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, en hlaut ekki afgreiðslu. Það er á þingmálaskrá yfirstandandi þings, en hefur enn ekki verið lagt fram að nýju.
Gert hefur verið ráð fyrir að tekjur af menningarframlaginu gætu numið um 260 milljónum króna árlega.
Hér má skoða nýjustu drög frumvarpsins.
Fréttaflutning Klapptrés af þessu máli má skoða hér.













