Arnar hefur setið í stjórn SÍK frá 2024. Fráfarandi formaður, Anton Máni Svansson, var kjörinn meðstjórnandi ásamt Hilmari Sigurðssyni og Búa Baldvinssyni.
Arnar útskrifaðist frá leikstjórnar- og framleiðsludeild Kvikmyndaskóla Íslands árið 2012 og hefur síðan þá starfað við kvikmyndagerð. Hann er með MA gráðu frá Met Film School í London og MMM gráðu í Markaðsfræðum frá Háskólanum á Bifröst. Arnar hefur framleitt verkefni af öllum stærðum og gerðum, leikið sjónvarpsefni, skemmtiefni, stuttmyndir, heimildamyndir og myndir í fullri lengd sem framleiðandi og meðframleiðandi. Hann framleiddi meðal annars kvikmyndina Villibráð árið 2023 og meðframleiddi sjónvarpsþættina Afturelding.
Arnar var fagstjóri framleiðslu hjá Kvikmyndaskóla Íslands 2024-2025, starfaði sem framleiðandi og framkvæmdastjóri Zik Zak kvikmynda 2018-2021 og sem framleiðandi þar 2021-2023. Síðan þá hefur hann unnið sem framleiðandi hjá Sagafilm.













