Anton Máni Svansson hefur verið formaður SÍK undanfarin ár, en lætur nú af embætti formanns. Hann býður sig fram til stjórnar.
Þau sem bjóða sig fram til formannsembættisins eru framleiðendurnir Arnar Benjamín Kristjánsson hjá Sagafilm, Grímar Jónsson hjá Netop Films og Milla Ósk Magnúsdóttir hjá ACT 4. Þau gera grein fyrir sér hér.
Sjö bjóða sig fram í sæti þriggja meðstjórnenda. Þau eru Anton Máni Svansson hjá STILL VIVID, Birgitta Björnsdóttir hjá Vintage Pictures, Búi Baldvinsson hjá Hero Productions, Hilmar Sigurðsson hjá GunHil, Hrönn Kristinsdóttir, Skarphéðinn Guðmundsson framkvæmdastjóri Sagafilm og Sunna Guðnadóttir hjá Bjartsýn Films. Sjá nánar um þau hér.
Heimildir Klapptrés herma að ekki hafi verið svo mikill áhugi á formannsembætti SÍK sem og stjórnarsetu í háa herrans tíð.













