Fuglar og menn var frumsýnd á alþjóðlegum vettvangi á CPH í Kaupmannahöfn, einni stærstu og virtustu heimildamyndahátíð heims og hefur síðan notið mikillar velgengni á hátíðum víða. Þetta er í annað sinn sem myndin hlýtur sérstaka viðurkenningu frá áhorfendum. Fyrr á þessu ári hlaut hún Einarinn, áhorfendaverðlaun Skjaldborgar 2026, eftir afgerandi kosningu áhorfenda.
Fuglar og menn fjallar um hjónin Ólaf Aðalsteinsson og Jóhönnu Óladóttur sem hafa í yfir tvo áratugi helgað líf sitt uppbyggingu og verndun æðarvarps í hinum afskekkta Loðmundarfirði á Austfjörðum. Í firðinum, sem lagðist í eyði fyrir meira en hálfri öld, hafa þau byggt upp eitt öflugasta varpsvæði landsins við krefjandi aðstæður. Myndin er áhrifamikil saga um þrautseigju, náttúruvernd og hið einstaka samband manns og náttúru. Myndin verður frumsýnd í Smárabíó þann 16. september.
Midnight Sun Film Festival er haldin árlega í Sodankylä, norðan heimskautsbaugs, þar sem kvikmyndir eru sýndar undir miðnætursólinni allan sólarhringinn. Hátíðin hefur um árabil verið talin meðal mikilvægustu kvikmyndahátíða Evrópu og er þekkt fyrir listrænan metnað, einstaka stemningu og heimsóknir margra af fremstu kvikmyndagerðarmönnum samtímans. Meðal gesta á hátíðinni í ár voru Susan Seidelman, Abderrahmane Sissako, Stéphane Brizé og İlker Çatak.
Hátíðin var stofnuð af bræðrunum Aki og Mika Kaurismäki árið 1986. Hún hefur um áratugaskeið laðað að sér fremstu kvikmyndagerðarmenn, gagnrýnendur og kvikmyndaunnendur alls staðar að úr heiminum.













