Heimildamyndin Fuglar og menn eftir Ingvar Þórðarson, Ragnar Axelsson og Mika Kaurismäki var valin meðal uppáhaldsmynda áhorfenda á hinni kunnu Midnight Sun Film Festival í Lapplandi í Finnlandi um síðustu helgi. Á hátíðinni eru ekki veitt formleg verðlaun, en þess í stað ráða atkvæði áhorfenda því hvaða myndir fá aukasýningar meðan á hátíðinni stendur. Fuglar og menn var ein þeirra.