Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kvikmyndamiðstöð Íslands og þar segir ennfremur:
Tekið er á móti verkefnum sem uppfylla eitt eða fleiri af eftirfarandi skilyrðum:
- Umfjöllun um samtímamálefni sem skiptir máli og hefur skírskotun þvert á Norðurlöndin.
- Aðgengileg frásögn með skýrum krækjum, áhugaverðum persónum og grípandi byggingu. Rannsóknir, afhjúpanir, réttlæti, ráðgátur eða önnur sjónarhorn sem vekja athygli.
- Sértækur aðgangur að fólki, stofnunum eða umhverfi.
- Mikil gæði í framleiðslu þar á meðal nýjungar og nýsköpun í frásagnaraðferð, formi og sjónrænum stíl sem hentar almennum áhorfendum.
- Norrænt samstarf. Hvatt er til að senda inn verkefni með fólki eða sjónarhornum frá fleiri en einu Norðurlandanna.
Umsókninni skal fylgja:
- Stutt kynning á byggingu frásagnar, viðfangsefni og ástæðu þess að það á erindi núna.
- Aðgengi: greinið frá því hvað er sérstakt við aðgengi að viðfangsefni, nálgun eða rannsóknarsjónarhorn.
- Skýr markmið við þróun
- Kynning á því skapandi teymi sem vinnur að verkefninu og fyrri verkum þeirra.
- Samstarfs- og framleiðsluáætlun: Hvaða norrænu lönd og fyrirhugaðir samstarfsaðilar munu koma að framleiðslunni? Hverjir eru helstu kostnaðarliðir og hvernig verður það fjármagnað?
Svona virkar þetta:
Sendið verkefnið inn fyrir 1. júní. Fulltrúar RÚV og KMÍ meta umsóknir í sameiningu. Aðstandendum valinna verkefna verður boðið að kynna verkefnið fyrir almannaþjónustumiðlum og kvikmyndamiðstöðvum Norðurlandanna á lokuðum kynningarfundi hjá Nordisk Panorama í september og eiga þar möguleika á frekari fjármögnun.
Valin verkefni fá þróunarstyrk frá samstarfsaðilum í sínu landi og komast fljótt í viðræður um samframleiðslu.
Ef spurningar vakna má snúa sér til almannaþjónustumiðlanna eða heimildarmyndadeilda kvikmyndasjóðanna.













