Sólveig filmar framhald „Skrapp út“ og „The Queen of Montreuil“ á Íslandi í haust

Sólveig Anspach leikstjóri.
Sólveig Anspach leikstjóri.

Sólveig Anspach mun hefja tökur á framhaldi kvikmyndanna Skrapp út og Queen of Montreuil í september nk. og mun myndin heita The Aquatic Effect.

Framleiðandi Queen of Montreuil, Patrick Sobelman, mun framleiða myndina og Le Pacte dreifa henni, sama fyrirtæki og sér um dreifingu síðustu myndar Sólveigar, Lulu, femme nue. Um þriðjungur myndarinnar verður tekinn upp í Frakklandi en önnur atriði hér á landi. Didda verður ein aðalleikara myndarinnar, líkt og í Skrapp út og Queen of Montreuil.

Lulu, femme nue, nýjasta kvikmynd Sólveigar Anspach, hefur verið gríðarvel sótt í Frakklandi. Í fyrradag höfðu 433.470 miðar verið seldir á myndina frá frumsýningardegi, 22. janúar, skv. tölum frá fyrirtækinu sem dreifir henni, Le Pacte.

Mbl.is segir frá, sjá hér: Sólveig tekur upp kvikmynd á Íslandi – mbl.is.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR