Á FERÐ MEÐ MÖMMU nálgast sjö þúsund gesti

Á ferð með mömmu er áfram með mesta aðsókn íslenskra kvikmynda í vikunni sem leið.

Á ferð með mömmu sáu 1,748 í vikunni en alls nemur heildarfjöldi gesta 6,924 eftir fjórðu sýningarhelgi.

969 gestir sáu Napóleonsskjölin í vikunni, en alls hafa 26,384 séð hana eftir sjöundu sýningarhelgi.

Volaða land sáu 811 í vikunni, en alls nemur fjöldi gesta 1,772 eftir aðra sýningarhelgi.

Villibráð sáu 565 gestir í vikunni, en alls nemur heildarfjöldi gesta 53,664 eftir 11. sýningarhelgi.

Aðsókn á íslenskar myndir 13.-19. mars 2023

VIKUR MYND AÐSÓKN (SÍÐAST) ALLS (SÍÐAST)
4 Á ferð með mömmu 1,748 (1,592) 6,924 (5,176)
7 Napóleonsskjölin 969 (1,388) 26,384 (25,415)
2 Volaða land 811 (563) 1,772 (961)
11 Villibráð 565 (947) 53,664 (53,099)

(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR