79 alþjóðleg verðlaun til íslenskra kvikmynda og sjónvarpsþátta 2017

Íslenskar kvikmyndir halda sínu striki líkt og undanfarin ár og sópa til sín miklum fjölda alþjóðlegra verðlauna. Alls hlutu íslenskar kvikmyndir og sjónvarpsefni 79 alþjóðleg verðlaun á árinu 2017.

Fjöldi verðlauna er nokkuð meiri en 2016 (71). 2015 voru verðlaun alls 102, 2014 voru þau 34 og 33 2013.

Alls fengu 8 bíómyndir, 1 þáttaröð, 2 heimildamyndir og 6 stuttmyndir verðlaun 2017. Hjartasteinn fékk flest verðlaun eða 33 talsins. Þetta er annað árið í röð sem hún fær flest verðlaun íslenskra kvikmynda. Vetrarbræður kemur þar á eftir með 12 verðlaun. Stuttmynd Nönnu Kristínar Magnúsdóttur, Ungar, hlaut alls 10 verðlaun á síðasta ári.

Verðlaun til íslenskra kvikmynda á árinu (miðað er við alþjóðlegar hátíðir, óháð staðsetningu)

Sjá má allar fréttir um verðlaun til íslenskra kvikmynda hér (hvar, hvenær, hverskonar verðlaun). Heildarverðlaun viðkomandi myndar innan sviga hafi myndin unnið til verðlauna áður.

BÍÓMYNDIR:

Ég man þig – 1 verðlaun

Fantasy Film Fest, farandhátíð sjö stærstu borga Þýskalands, september. Vann aðalverðlaunin fyrir bestu mynd.

Hjartasteinn – 33 verðlaun (46 alls)

Premiers Plans – Festival D’Angers, Angers, Frakklandi, 20. – 29. janúar. Vann þrenn verðlaun; aðalverðlaun fyrir bestu mynd, áhorfendaverðlaun og Guðmundur Arnar Guðmundsson vann Erasmus verðlaun.
Göteborg Film Festival, Svíþjóð, 27. janúar – 6. febrúar. Vann þrenn verðlaun; Lorens verðlaunin fyrir bestu framleiðendur að kvikmynd, dreifingarverðlaun Scope100 í Svíþjóð og dreifingarverðlaun Scope100 í Portúgal.
Annonay International Film Festival, Annonay, Frakklandi, 3. – 13. febrúar. Vann tvenn verðlaun; sérstök dómnefndaverðlaun og verðlaun nemenda.
Belgrade International Film FestivalBelgrad, Serbíu, 26. febrúar – 6. mars. Vann tvenn verðlaun; fyrir bestu frumraun og dómnefndarverðlaun.
Guadalajara FF – Premio MagueyGuadalajara, Mexíkó, 10. – 17. mars. Vann sérstök dómnefndarverðlaun.
BUFF International Film FestivalMalmö, Svíþjóð, 20. – 25. mars. Vann kirkjuverðlaun.
Febiofest, Prag, Tékklandi, 23. – 31. mars. Vann aðalverðlaun fyrir bestu mynd.
Dallas International Film Festival, Dallas, Bandaríkjunum, 30. mars – 9. apríl. Guðmundur Arnar Guðmundsson vann sérstök dómnefndarverðlaun fyrir leikstjórn.
Wicked Queer Festival, Boston, Bandaríkjunum, 30. mars – 9. apríl. Vann fyrir bestu leiknu kvikmynd.
Crossing Europe Filmfestival, Linz, Austurríki, 25. – 30. apríl. Vann áhorfendaverðlaun.
Zlín Film Festival, Zlín, Tékklandi, 26. maí – 3. júní. Vann Europe verðlaunin fyrir bestu evrópsku frumraunina.
Cinema in Sneakers Festival, Varsjá, Póllandi, 31. maí – 11. júní. Vann fyrir bestu mynd.
Transilvania International Film Festival, Transilvaníu, Rúmeníu, 2. – 11. júní. Vann tvenn verðlaun; Guðmundur Arnar Guðmundsson vann fyrir bestu leikstjórn og myndin vann áhorfendaverðlaun.
FIRE!! Festival, Barcelona, Spáni, 8. – 18. júní. Vann fyrir bestu mynd.
Festival MIX, Mílanó, Ítalíu, 15. – 18. júní. Vann fyrir bestu mynd.
Art Film Fest Košice, Košice, Slóvakíu, 16. – 24. júní. Baldur Einarsson og Blær Hinriksson deildu með sér verðlaunum fyrir bestan leik.
Filmfestival Münster, Münster, Þýskalandi, 4. – 8. október. Guðmundur Arnar Guðmundsson var valinn besti leikstjórinn í keppni evrópskra kvikmynda.
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Tromsö, Tromsö, Noregi. Dón Kíkóta verðlaunin
European University Film Award
Cape Town International Film Market & Festival, S-Afríka. Besta LGBT myndin.
LIFFE Ljubljana International Film Festival, Slóvenía. Áhorfendaverðlaunin.
Chéries-Chéris Film Festival, Frakklandi (LGBTQ). Dómnefndarverðlaun.
CINEDAYS Festival of European film, Skopje, Makedóníu. Gullna stjarnan fyrir bestu mynd.
“Du grain à démoudre” Film Festival, Frakklandi. Besta myndin að mati dómnefndar ungmenna og besta mynd að mati áhorfenda hátíðarinnar.
International Education Film Festival, Frakklandi. Besta myndin.

Reykjavík – 1 verðlaun

Love is Folly, Varna, Búlgaríu, 25. ágúst – 3. september. Vann verðlaun gagnrýnenda.

Sundáhrifin – 2 verðlaun (3 alls)

César Awards, París, Frakklandi, 24. febrúar. Sólveig Anspach og Jean-Luc Gaget unnu fyrir besta frumsamda handrit.
Transilvania International Film Festival, Transilvaníu, Rúmeníu, 2. – 11. júní. Vann Young Francophone dómnefndarverðlaun.

Undir trénu – 4 verðlaun

Fantastic Fest, Austin, Bandaríkjunum, 21. – 28. september. Hafsteinn Gunnar Sigurðsson vann fyrir besta leikstjóra í gamanmyndaflokki.
Zürich Film Festival, Zürich, Sviss, 27. september – 7. október. Vann sérstök dómnefndarverðlaun.
Hamptons kvikmyndahátíðinni, Hamptons, Bandaríkjunum, 5. – 9. október. Vann fyrir bestu leiknu kvikmynd.
Denver Film Festival, Denver Colorado, Bandaríkjunum. Sérstök viðurkenning dómnefndar.

Vetrarbræður – 12 verðlaun

Locarno Film Festival, Locarno, Sviss, 2. – 12. ágúst. Vann fern verðlaun; Elliot Crosset Hove vann fyrir bestan leik í aðalhlutverki, vann fyrir bestu evrópsku kvikmynd, vann fyrstu verðlaun dómnefndar ungmenna og sérstök dómnefndarverðlaun kirkjunnar
T-Mobile New Horizons International Film Festival, Wroclaw, Póllandi, 3. – 13. ágúst. Vann sérstök dómnefndarverðlaun FIPRESCI gagnrýnendasamtakanna.
CPH PIX, Kaupmannahöfn, Danmörku, 28. september – 11. október. Vann New Talent Grand PIX – aðalverðlaun hátíðar fyrir bestu mynd.
Thessaloniki International Film Festival, Þessalóníku, Grikklandi, 2. – 12. nóvember. Vann þrenn verðlaun; Hlynur Pálmason vann Brons Alexander – sérstaka viðurkenningu dómnefndar fyrir besta leikstjóra, sérstök dómnefndarverðlaun fyrir besta hljóð og sérstök dómnefndarverðlaun FIPRESCI gagnrýnendasamtakanna.
Camerimage, Póllandi. Besta myndatakan (Maria Von Hausswolff )
Festival de Sevilla, Spáni. Besta myndataka (Maria von Hausswolff)
Festival International du Film de La Roche-sur-Yon, Frakklandi. Sérstök viðurkenning alþjóðlegrar dómefndar.

Svanurinn – 2 verðlaun

Cairo International Film Festival, Cairo, Egyptalandi. Besta myndin.
Kolkata International Film Festival, Kolkata, Indlandi. Besti leikstjórinn.

Rökkur – 3 verðlaun

Philadelphia Unnamed Film Festival, Philadelphia, Bandaríkjunum. Besta myndin.
California Independent Film Festival, San Francisco, Bandaríkjunum. Besta myndatakan (John Wakayama Carey)
Outfest, Los Angeles, Bandaríkjunum. Sérstök verðlaun fyrir listrænt framlag.

STUTTMYNDIR:

Ártún – 4 verðlaun (19 alls)

Third Culture Film Festival, Hong Kong. Verðlaunin voru veitt fyrir bestu myndina, besta leikstjóra, bestu myndatöku (Sturla Brandth Grøvlen) og besta leikara (Flóki Haraldsson).

Búi – 1 verðlaun

SCHLINGEL – International Film Festival for Children and Young Audience, Chemnitz, Þýskalandi, 25. september – 1. október. Vann fyrir bestu stuttmynd.

Ungar – 10 verðlaun

Flickerfest International Short Film Festival, Sydney, Ástralíu, 6. – 15. janúar. Vann fyrir bestu stuttmynd.
FEC-European Short Film Festival, Reus, Spáni, 29. mars – 2. apríl. Vann áhorfendaverðlaun.
ÉCU – The European Independent Film Festival, París, Frakklandi, 21. – 23. apríl. Vann fyrir bestu mynd.
Les Nuits en Or, París, Frakklandi, 13. – 15. júní. Nanna Kristín Magnúsdóttir hlaut sérstaka viðurkenningu.
Promofest, Spáni. Vann sérstaka viðurkenningu.
Auburn International Film Festival for Children and Young Adults, Sydney, Ástralíu, 18. – 22. september. Vann fyrir bestu stuttmynd um/fyrir ungt fólk.
Push! Film Festival, Bristol, Bandaríkjunum, 20. – 22. október. Vann fyrir bestu stuttmynd.
Kaohsiung Film Festival, Kaohsiung, Tævan, 20. október – 5. nóvember. Vann fyrir framúrskarandi stuttmynd.
Regensburg Short Film Week, Regensburg, Þýskalandi. Tvær viðurkenningar.

Þrír menn – 1 verðlaun

ISFF Cinemaiubit, Rúmeníu. Besta handrit.

Cut – 1 verðlaun

UnderWire Festival, London, Englandi. Sérstök viðurkenning fyrir handrit.

Hvalfjörður – 1 verðlaun (48 alls)

Real Time Film Festival, Nígeríu. Besta erlenda stuttmyndin.

HEIMILDAMYNDIR:

Baskavígin – 1 verðlaun

Richmond International Film Festival, Richmond, Bandaríkjunum, 27. febrúar – 5. mars. Vann fyrir bestu heimildamynd.

Jökullinn logar – 1 verðlaun

Kicking & Screening Soccer Film Festival, New York, Bandaríkjunum. Gold­en Whistle-verðlaun­in.

LEIKIÐ SJÓNVARPSEFNI:

Ófærð – 1 verðlaun

Verðlaun Breska handritshöfundafélagsins (Writer’s Guild), Bretlandi. Best longform TV drama (Clive Bradley).

[divider scroll_text=““]ATHUGASEMD: Fréttin var uppfærð 7.2.2018. Upphaflega voru verðlaunin sögð 69 en ein verðlaun reyndust vantalin hjá Vetrarbræðrum og þar hafa einnig tvö bæst við – sömuleiðis vantaði að nefna sjö verðlaun sem Hjartasteinn hlaut.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR