Aðsókn | AMMA HÓFÍ yfir átján þúsund gesti eftir fimmtu helgi

Aðsókn er enn mikil á Ömmu Hófí en eftir fimmtu sýningarhelgi hefur myndin fengið um 18,200 gesti.

1,845 sáu Ömmu Hófí í liðinni viku, en alls hefur myndin fengið 18,201 gest eftir fimmtu sýningarhelgi.

726 sáu Síðustu veiðiferðina í vikunni. Eftir 23. sýningarhelgi (þar af sautján helgar í sýningum) nemur heildarfjöldi gesta 33,700 manns.

16 sáu Mentor í vikunni, en alls hafa 622 séð hana eftir sjöundu helgi.

ATH: Kvikmyndahúsin lokuðu þann 24. mars vegna kórónaveirufaraldursins og opnuðu aftur 4. maí.

Aðsókn á íslenskar myndir 3-9. ágúst 2020

VIKURMYNDAÐSÓKNALLS (SÍÐAST)
5Amma Hófí1,84518,201 (16,356)
23Síðasta veiðiferðin72633,700 (32,974)
7Mentor16622 (606)
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR