Úttekt gerð á RIFF í kjölfar gagnrýni á starfshætti

Menningarráðuneytið hyggst gera úttekt á rekstri RIFF. Þetta kemur fram í Heimildinni sem hefur að undanförnu skýrt frá harðri gagnrýni á eiganda hátíðarinnar, Hrönn Marinósdóttur.

Í frétt Heimildarinnar sem birtist í dag segir að „óháð úttekt verður gerð á starfsemi ríkisstyrktu kvikmyndahátíðarinnar RIFF.“

Blaðið vitnar í svarbréf ráðuneytisins við fyrirspurn þess, þar sem meðal annars segir: „Ráðuneytið telur mikilvægt að skoða styrkjaumgjörðina reglulega með það að leiðarljósi að bæta gagnsæi og gæði […] Ráðherra hefur því kallað eftir óháðri úttekt á RIFF með það að leiðarljósi að gera grein fyrir stöðu hátíðarinnar bæði sem verðmætasköpun fyrir ferðaþjónustu og listgreinar og sem menningarviðburður.“

Fyrrum starfsmaður RIFF skrifar bréf til Reykjavíkurborgar

Fyrr í apríl greindi Heimildin frá bréfi fyrrum starfsmanns RIFF til Reykjavíkurborgar þar sem fram kom gagnrýni á vinnubrögð Hrannar Marinósdóttur.

„Kvartanirnar snúast meðal annars um „misnotkun á starfsfólki“, „óheiðarleika“ og „léleg gæði hátíðarinnar“. Með bréfinu fylgja vitnisburðir frá öðrum starfsmönnum þar sem eigandi hátíðarinnar er gagnrýndur. Hrönn Marinósdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri RIFF, segir í svari við fyrirspurn Heimildarinnar um gagnrýnina að starfsfólk sé ekki hlunnfarið með því að greiða laun undir lágmarkstöxtum. „Við reynum eftir fremsta megni að tryggja vellíðan starfsfólks og ánægju í krefjandi starfsumhverfi […] Ekki hafa borist athugasemdir til mín frá starfsfólki um að það telji sig hafa verið hlunnfarið. Ekki er rétt að laun hafi verið undir lágmarkstaxta.“

Skýrsla gerð um RIFF fyrir rúmum áratug en aldrei birt opinberlega

Í þessari frétt kemur einnig fram að kvartanirnar gegn RIFF og Hrönn séu sams konar eðlis og fyrir rúmum áratug síðan þegar eftirlitsnefnd gerði „svarta skýrslu“ um starfsemi hátíðarinnar sem leiddi til þess að Reykjavíkurborg vildi ekki styrkja hátíðina um hríð, líkt og fjallað var um í fjölmiðlum á þeim tíma. Þessi skýrsla var aldrei gerð opinber á sínum tíma vegna þess að upplýsingarnar í henni voru „erfiðar, óvægnar og viðkvæmar“, eins og einn aðili innan úr stjórnkerfinu sagði í fjölmiðlum, en þær byggðu meðal annars á viðtölum við starfsfólk RIFF.

Hér má skoða samantekt Klapptrés um málið frá 17. janúar 2014.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR