Morgunblaðið um SVAR VIÐ BRÉFI HELGU: Ást í meinum

Jóna Gréta Hilmarsdóttir skrifar umsögn í Morgublaðið um Svar við bréfi Helgu eftir Ásu Helgu Hjörleifsdóttur og gefur henni fjórar og hálfa stjörnu.

Jóna skrifar:

Svar við bréfi Helgu segir frá ást í meinum á 5. áratugnum á Íslandi. Bóndinn Bjarni (Þorvaldur Davíð Kristjánsson) verður ástfanginn af konunni á næsta bæ, Helgu (Hera Hilmarsdóttir) en þau eru bæði gift öðrum.

Svar við bréfi Helgu er kvikmyndaaðlögun á vinsælli skáldsögu eftir Bergsvein Birgisson frá árinu 2010. Í skáldsögunni skrifar aldraður bóndi bréf til látinnar ástkonunnar en í kvikmyndinni gefst tækifæri til þess að láta önnur sjónarhorn lifna við. Leikstjórinn, Ása Helga Hjörleifsdóttir, leyfir sér að segja söguna út frá þremur sjónarhornum og leyfir áhorfendum um leið að fylgjast með innra og ytra ferðalagi þessara þriggja sögupersóna; elskendanna og síðan eiginkonu Bjarna, Unnar (Aníta Briem).

Kvikmyndin er mjög mannleg og segir frá innra ferðalagi persóna, þ.e. umbreytingunni á tilfinningalífi þeirra á meðan framhjáhaldið á sér stað og eftir það, en það er innri ferðin sem áhorfendur heillast af. Hér ekki um að ræða eintóna atburðarás án nokkurrar dýptar eins og flestar nútímahasarmyndir eru. Kvikmyndin endurspeglar tilfinningalíf persónanna en til þess að fanga eitthvað sem sést ekki á mynd þarf virkilega að nota tökuvélina sem pensil og það tekst Ásu Helgu og kvikmyndatökumanninum, Jasper Wolf, listilega.

Kvikmyndin er mjög ljóðræn og landslagið og sveitin hafa mikla þýðingu. Bjarni rennur hálfpartinn saman við landslagið í mörgum atriðum. Áhorfendur verða því ekki hissa þegar Bjarni virðist ekki fær um að yfirgefa sveitina til þess að stofna nýtt líf með Helgu, en hann er eins og tröllin í þjóðsögunum, sem urðu fyrir sólinni, nú hluti af náttúrunni. Það má því segja að sveitin, og allt sem tilheyrir henni, sé meðal þess sem stendur í vegi fyrir hamingju Bjarna og Helgu og um leið það sem er í húfi. Sveitin endurspeglar ákveðin höft innra með honum eða það sem kemur í veg fyrir að hann taki skrefið með Helgu. Þorvaldur Davíð notar síðan líkama sinn til þess að koma þessu betur til skila með því t.d. að halda höndunum þétt upp við líkamann. Það má því lesa margt í myndheildina en hún er einnig leið persónanna til þess að tjá sig um það sem er ósagt. Útsaumaða verkið eftir Unni, inni í stofunni heima hjá þeim hjónunum, er dæmi um slíkt en það er eins og Unnur hafi saumað það fyrir áhorfendur. Í verkinu stendur karlmaður á milli tveggja kvenna. Önnur er dökkhærð eins og Helga og hin ljóshærð, klædd öllu hvítu, eins og Unnur sjálf. Verkið er skemmtileg, myndræn leið til þess að setja áhorfendur í spor Unnar. Leikstjórinn lætur útsaumaða verkið birtast ítrekað í gegnum myndina, sem verður þreytandi til lengdar, líkt og áhorfandanum sé ekki treyst. Áhorfendur mynduðu tenginguna við verkið og raunverulegu atburðina í fyrsta skiptið sem verkið er sýnt.

Leikaravalið er í heild gott og styrkir myndina. Bjarna leikur Þorvaldur Davíð og tekst listilega að fanga karlmann sem er ásóttur af sínum eigin ákvörðunum. Hera Hilmarsdóttir er einnig í eftirminnileg í hlutverki nútímakonunnar Helgu en senuþjófur myndarinnar er án efa Aníta Briem. Hvort sem það hefur verið markmiðið eða ekki liggur samúð áhorfenda með Unni, sem Aníta Briem leikur, en ekki með elskendunum sem aldrei ná saman. Eitt atriði stendur upp úr í myndinni. Það er þegar Bjarni í óhamingju sinni reynir að kenna Unni um framhjáhaldið og óskar henni dauða. Hæfileikar Anítu Briem og Þorvaldar Davíðs skína þar í gegn en atriðið minnir á álíka atriði úr Marriage Story (2019) eftir Noah Baumbach.

Þrátt fyrir að myndin sé ein stór rómantísk dramamynd eru mörg rammíslensk fyndin augnablik. Dæmi um það er þegar eldri karlmaður skammt frá í sveitinni, sem Sigurður Sigurjónsson leikur, hengdi líkið af látinni eiginkonu sinni upp með reipi við eldinn heima hjá sér en það leið smá tími þangað til Bjarni og Ingjaldur (Arnmundur Ernst Björnsson) gátu farið með bát og sótt það. Hún hékk þarna eins og draugur í húsinu í millitíðinni. Þegar líkið var tekið niður mátti sjá brunabletti á andliti þess en eitthvað þurfti að gera til þess að halda því í skikkanlegu formi!

Svar við bréfi Helgu er önnur mynd Ásu Helgu í fullri lengd. Hún leikstýrði áður kvikmyndinni Svaninum (2017) sem er einnig kvikmyndaaðlögun eftir skáldsögu. Ljóst er að hér er á ferðinni spennandi kvikmyndahöfundur sem segir mannlegar sögur og lífgar við innra líf persónanna.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR