SVAR VIÐ BRÉFI HELGU í fyrsta sæti eftir frumsýningarhelgina

Svar við bréfi Helgu eftir Ásu Helgu Hjörleifsdóttur var frumsýnd á föstudag og er í fyrsta sæti aðsóknarlistans eftir frumsýningarhelgina.

955 gestir sáu myndina um helgina, en heildarfjöldi gesta nemur 1,855 með forsýningum.

Þetta er stærri opnun en hjá Skjálfta (1,555) sem endaði í um fjögur þúsund gestum, en nokkuð lægri en hjá Berdreymi (2,160) sem nálgast nú tíu þúsund gesta markið. Báðar voru frumsýndar fyrr á árinu.

Aðsókn á íslenskar myndir 29. ágúst-4.sept. 2022

VIKURMYNDAÐSÓKN (SÍÐAST)ALLS (SÍÐAST)
Svar við bréfi Helgu955 (helgin)1,855 (með forsýningum)
20Berdreymi-9,599 (-)
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR