![Sigurður Skúlason og Theódór Júlíusson í Hjónabandssælu eftir Jörund Ragnarsson.](https://i0.wp.com/klapptre.is/wp-content/uploads/2014/09/hjónabandssæla-chum2.jpg?resize=696%2C392&ssl=1)
Stuttmyndin Hjónabandssæla eftir Jörund Ragnarsson hlaut fyrstu verðlaun í stuttmyndaflokki á Montreal World Film Festival sem lauk í gær í Kanada.
Myndin fjallar um tvo aldavini sem lendir saman þegar falleg kona á þeirra aldri kemur í þorpið þeirra. Meða aðalhlutverkin fara Sigurður Skúlason, Theodór Júlíusson, Anna Kristín Arngrímsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson og Guðrún Leifsdóttir.
Jörundur stundar nú nám í kvikmyndagerð í New York. Myndin mun taka þátt í Nordisk Panorama hátíðinni nú í september og stefnir að auki á fleiri hátíðir víða um heim.