Yfir 11 þúsund hafa séð Á FERÐ MEÐ MÖMMU

Á ferð með mömmu er sjöttu vikuna í röð með mesta aðsókn íslenskra kvikmynda. Myndina sáu 615 í vikunni en alls nemur heildarfjöldi gesta 11,159 eftir áttundu sýningarhelgi.

Villibráð sáu 341 í vikunni, en alls nemur heildarfjöldi gesta 55,790 eftir 15. sýningarhelgi.

Volaða land sáu 231 í vikunni, en alls nemur fjöldi gesta 3,870 eftir sjöttu sýningarhelgi.

189 gestir sáu Napóleonsskjölin í vikunni, en alls hafa 28,343 séð hana eftir 11. sýningarhelgi.

Óráð sáu 161 í vikunni en alls nemur heildaraðsókn 1,556 gestum eftir þriðju sýningarhelgi.

Aðsókn á íslenskar myndir 10.-16. apríl 2023

VIKUR MYND AÐSÓKN (SÍÐAST) ALLS (SÍÐAST)
8 Á ferð með mömmu 615 (1,202) 11,159 (10,544)
15 Villibráð 341 (414) 55,790 (55,449)
6 Volaða land 231 (420) 3,870 (3,639)
11 Napóleonsskjölin 189 (432) 28,343 (28,154)
3 Óráð 161 (480) 1,556 (1,395)

(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.
Síðasta færsla
Næsta færsla

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR