Nýja Eddustyttan

Höfundur nýrrar Eddustyttu er Árni Páll Jóhannsson leikmyndahönnuður. Örn Smári sá um grafíska útfærslu.

Nýr verðlaunagripur Eddunnar var kynntur til sögu í dag. Árni Páll Jóhannsson leikmyndahönnuður er höfundur verksins.

Ástæða þess að ný Eddustytta kemur til sögu er sú að ekki náðust samningar við rétthafa um greiðslur. Samningaviðræður höfðu staðið yfir um nokkurn tíma en þegar ljóst varð að samkomulagi varð ekki náð ákvað stjórn ÍKSA að láta gera nýja stytttu.

Eldri Eddustyttan var veitt frá upphafi, 1999 til ársins 2016. Höfundur hennar var Magnús Tómasson. Fjallað er um sögu hennar og hugmyndina að baki henni hér.

Árni Páll Jóhannsson leikmyndahönnnuður er höfundur hinnar nýju styttu. Hann gerir grein fyrir henni á eftirfarandi hátt:

Það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég var  beðinn um að gera tillögu að Edduverðaunastyttu var að fara á netið og skoða verðlaunastyttur heimsinns.

Eftir dágóða stund við tölvuna sá ég að það voru flestar styttur frænkur óskarsverðlaunastyttunar eða gler eitthvað, ef þær voru ættaðar einhverstaðar austan að. Fæstar höfðu ekki nokkra tengingu við kvikmyndagerð eða sjónvarp. Þá varð að leggja hausinn í bleyti og reyna að gera styttu sem tengdist faginu.

Sumir fá margar Eddur á þessu kvöldi, þá þarf hún að vera eitthvað  sem að gott er að halda á í kippum og staflast vel þegar heim er komið. Svo er það tengingin. Kvikmyndir hreyfast oftast eins og sjónvarp gerir stundum líka, þar eru ljós, skuggar og myndir af einhverju sem segja eitthvað í einhverju formati sjaldnast í portretformati.

Á styttan að hreyfast, á að vera ljós í henni, hljóð, myndir, og hvaða format á að vera á henni ?

Á hún að standa á borði eða hanga uppi á vegg ?

Hvað hef ég komið mér í? Það er ekki hægt að þjóna öllum.

Hverjum á að þjóna? Svarið kom að lokum. Öllum nema búningum og leikmynd.

Svo var stytta gerð aftur og aftur, loks kom hún.

Hún speglaði sjálfa sig. Gott fyrir styttur.

Það var hægt að láta hana standa á borði lóðrétta eða lárétta,

Hanga vegg lóðrétta og lárétta hún þjónaði öllum, líka búningum og leikmynd. Hún er sett saman með fallegu handverki eins og frá góðu handverksmönnum fagsinns, ekki steypt eins og fjöldaframleiðsla nútímanns. Hún þjónar meira að segja framleiðendum og leikstjórum, það er hægt að berja með henni.

Hún þjónar sminkum, það er spegill í henni, Hún þjónar aðal- og aukaleikurum, þeir sjá sjálfa sig í henni, það er hægt að rúlla henni eftir trakki  fram og til baka – það er fyrir tökumanninn, umhverfið speglast í henni – það er fyrir þáttagerðafólk, búninga og leikmynd, það skröltir hóflega í henni – það er fyrir hljóðið, það er hægt að glamra á hana tónlist, hún varpar ljósi betur en nokkur reflector, gripparar geta notað hana sem hallamál.

En það besta við hana er að allir handhafar hennar sem áhorfendur hennar sjá sjálfa sig í henni.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR