Ingibjörg Gréta Gísladóttir ráðin framkvæmdastjóri ÍKSA

Ingibjörg Gréta Gísladóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar. 

Hún tekur við starfinu af Auði Elísabetu Jóhannsdóttur, sem gegnt hefur starfinu undanfarin ár.

Ingibjörg Gréta hefur yfirgripsmikla reynslu af störfum sem snúa að rekstri og stefnumótun ásamt viðburða- og verkefnastjórnun. Hún er með MS gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst með áherslu á nýsköpun og frumkvöðlafræði auk þess er hún með BFA í leiklist frá Listaháskólanum (Leiklistarskóla Íslands). Hún hefur áratuga reynslu af viðburða- og verkefnastjórnun, hefur stýrt sýningum, hátíðum og viðburðum hérlendis sem erlendis auk almannatengsla og markaðsmála þeim tengdum.

,,Eftir heildstætt mat var Ingibjörg Gréta valin til að gegna starfi framkvæmdastjóra Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar og erum við mjög ánægð með að fá hana til liðs við okkur. Hennar fyrsta verk verður að halda utan um Kvikmyndaverðlaun Eddunnar sem er nú í fullum undirbúningi” segir Anton Máni Svansson, formaður stjórnar ÍKSA.

,,Það er mér mikill heiður að fá að taka þátt í verkefnum Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, vinna að Eddunni og hugðarefnum meðlima ÍKSA og tek ég auðmjúk við keflinu af Auði Elísabetu sem hefur unnið mjög gott starf. Ég vona að mér beri gæfa til að fylgja hennar góða starfi eftir” segir Ingibjörg Gréta.

Ingibjörg Gréta hefur þegar hafið störf hjá Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR