Á FERÐ MEÐ MÖMMU komin yfir níu þúsund gesti, VILLIBRÁÐ yfir 55 þúsund

Á ferð með mömmu er fjórðu vikuna í röð með mesta aðsókn íslenskra kvikmynda. Óráð, sem frumsýnd var á föstudag, er í fjórða sæti á tekjulista FRÍSK.

Á ferð með mömmu sáu 1,393 í vikunni en alls nemur heildarfjöldi gesta 9,342 eftir sjöttu sýningarhelgi. Þetta er nokkur aukning frá síðustu viku og má telja líklegt að eldri aldurshópar séu að skila sér inn í kjölfar jákvæðs umtals. Myndin gæti náð 12 þúsund gesta markinu.

Volaða land sáu 704 í vikunni, en alls nemur fjöldi gesta 3,219 eftir fjórðu sýningarhelgi.

Villibráð sáu 653 gestir í vikunni, en alls nemur heildarfjöldi gesta 55,035 eftir 13. sýningarhelgi. Við blasir að myndin mun í næstu viku ná sjöunda sætinu yfir mest sóttu íslensku myndirnar síðan mælingar hófust.

652 gestir sáu Napóleonsskjölin í vikunni, en alls hafa 27,722 séð hana eftir níundu sýningarhelgi.

Óráð var frumsýnd á föstudag. 515 sáu hana yfir helgina, en alls 915 með forsýningu.

Aðsókn á íslenskar myndir 27. mars til 2. apríl 2023

VIKUR MYND AÐSÓKN (SÍÐAST) ALLS (SÍÐAST)
6 Á ferð með mömmu 1,393 (1,154) 9,342 (8,078)
4 Volaða land 704 (743) 3,219 (2,515)
13 Villibráð 653 (718) 55,035 (54,382)
9 Napóleonsskjölin 652 (686) 27,72 (27,070)
Óráð 515 (helgin) 915 (með forsýningum)

(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR