Meistaraspjall, pallborð og helstu heimildamyndir frá Skjaldborg í Bíó Paradís

Heimildamyndahátíðin Skjaldborg, sem haldin er árlega um hvítasunnu á Patreksfirði, stendur fyrir viðburðum og sýningum á völdum myndum úr dagskrá nýliðinnar hátíðar í Bíó Paradís dagana 15.-16. september.

Helgin hefst með meistaraspjalli með Mörtu Andreu, framleiðanda og ráðgjafa við þróun heimildamynda, föstudaginn 15. september kl. 10:00-13:00. Meistaraspjallið fer fram í tengslum við höfundasmiðju SKL í umsjón Yrsu Roca Fannberg.

Laugardaginn 16. september kl. 13:30 fara fram pallborðsumræður um framtíð heimildamyndagerðar á Íslandi. Þátttakendur í pallborðinu eru Gísli Snær Erlingsson, forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, Helga Brekkan, ráðgjafi við Kvikmyndamiðstöð Íslands, Margrét Jónasdóttir, aðstoðardagskrárstjóri RÚV, og höfundar og framleiðendur innan heimildamyndafagsins á Íslandi. Stjórnandi pallborðsins er Kristín Andrea Þórðardóttir.

Aðgangur að meistaraspjallinu og pallborðsumræðunum er gjaldfrjáls.

Þá verða sýndar heimildamyndirnar Skuld, sem hlaut hvatningarverðlaun dómnefndar Skjaldborgar og Heimaleikurinn, sem hlaut áhorfendaverðlaun á hátíðinni. Einnig verða sýndar saman fjórar stuttar heimildamyndir frá Skjaldborg: KonniHlemmur MathöllSuper Soldier og Uppskrift: Lífið eftir dauðann . Aðstandendur verka munu sitja fyrir svörum áhorfenda að lokinni sýningu.

Frekari upplýsingar um dagskrána má finna á vef Bíó Paradísar.

Fjallað er um flestar þessara mynda í klippunni hér að neðan:

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR