LEYNILÖGGA tilnefnd til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í flokki gamanmynda

Leynilögga Hannesar Þórs Halldórssonar hefur verið tilnefnd sem besta gamanmyndin á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum í ár. Verðlaunahátíðin fer fram í Reykjavík 10. desember.

Myndin fjallar um leynilögguna Bússa sem leikinn er af Auðunni Blöndal. Bússi er einn besti lögreglumaður Reykjavíkur sem er í mikilli baráttu við sjálfan sig á sama tíma og hann berst við hættulegustu glæpamenn landsins.

Leynilögga var heimsfrumsýnd við standandi lófaklapp á kvikmyndahátíðinni í Locarno á Ítalíu 2021. Myndin hefur síðan ferðast heimshorna á milli og verið sýnd á eftirsóttum kvikmyndahátíðum.

Með aðalhlutverk fara Auðunn Blöndal, Egill Einarsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Vivian D. Ólafsdóttir, Sverrir Þór Sverrisson og Björn Hlynur Haraldsson. Handrit skrifuðu Nína Petersen, Sverrir Þór Sverrisson, Hannes Þór Halldórsson. Framleiðandi er Lilja Ósk Snorradóttir.

Leynilögga er á meðal þriggja kvikmynda sem tilnefndar eru í flokki gamanmynda. Hinar myndirnar eru La Fracture frá Frakklandi og El Buen Patrón frá Spáni.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR