Sigurjón Sighvatsson, sem er hvað þekktastur sem kvikmyndaframleiðandi, er sestur í stól leikstjóra. Heimildamynd hans Exxtinction Emergency verður frumsýnd á RIFF sem hefst í lok september.
Vísir greinir frá:
Í myndinni er fjallað um tilurð umhverfissamtakanna Extinction Rebellion sem spratt upp í Bretlandi árið 2018 í kjölfar sláandi skýrslu frá Milliríkjanefndinni um loftslagsbreytingar.
Fylgst er með samtökunum, baráttu þeirra fyrir málstaðnum og hvernig þau læra af af mistökum annarra baráttumanna. Stór hluti hópsins er kominn á aldur og fylgst er með því hvernig stjórnvöld lenda í vanda með hvernig eigi að meðhöndla borgaralega óhlýðni þeirra.
Rétt er að taka fram að ritstjóri Klapptrés er meðframleiðandi þessarar kvikmyndar.