Sigurjón Sighvatsson: Auka þarf framlög til íslenskrar kvikmyndagerðar til að vernda menningu og sérkenni þjóðar

Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi og formaður Kvikmyndaráðs sagði meðal annars í opnunarávarpi sínu á Kvikmyndaráðstefnunni í Hörpu að í stað þess að draga úr framlögum til íslenskrar kvikmyndagerðar þyrfti að auka þau.

Í ávarpi sínu fór Sigurjón yfir sögu íslenskrar kvikmyndagerðar allt frá því Morðsaga kom fram 1977 og til okkar daga. Hann tengdi þessa sögu jafnframt við alþjóðlega kvikmyndagerð og þá sérstaklega hina bandarísku og dró fram þær gríðarlegu breytingar sem orðið hafa á síðustu árum.

Skoða má ávarp Sigurjóns hér. (Athugið að viðburðinn stendur enn þegar þetta er skrifað og er ávarp Sigurjóns framarlega).

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR