Þau unnu Sprettfiskinn

Verðlaunaafhending Sprettfisks, stuttmyndasamkeppni Stockfish kvikmyndahátíðarinnar, fór fram um helgina. Keppt var í fjórum flokkum.

Flokkarnir eru skáldverk, heimildarverk, tilraunaverk og tónlistarverk. Hámarkslengd í öllum flokkum var 30 mínútur. Rúmlega 100 verk bárust í keppnina.

Skáldverk

Sigurvegari í flokki skáldverka var verkið Hreiðrið eftir Hlyn Pálmason. Dómnefndina skipuðu David Bonneville, Benedikt Erlingsson og Pamela Ribon. Hreiðrið hlýtur að launum eina milljón í úttekt frá tækjaleigunni KUKL og eina milljón í verðlaunafé frá Símanum auk þess sem myndin verður á dagskrá hjá Síminn Sjónvarp og fáanlegt í veitu Símans í allt að eitt ár.

Ummæli dómnefndar: “There are some films that demand you are a part of the action in order to feel its emotional impact. Others ask you to be a quiet observer, a witness to forward momentum of life. This film chose the later, keeping us locked in the view of one small stage for a family’s private journey. For its beautiful storytelling rooted in patience and love, the fiction jury has chosen Nest – Director – Hlynur Pálmason”

Sérstök viðurkenning fór að auki til myndarinnar Hex fyrir einstaka sýn en leikstjóri hennar er Katrín Helga Andrésdóttir.

Ummæli dómnefndar: “The jury would like to single out a film whose bold vision and driving narrative create an unforgettable cinematic experience, announcing a director who must be given every opportunity to shine brighter and bigger, in any genre she picks next. Honorable Mention and a Special Jury Prize for Exceptional Vision goes to HEX – Director – Katrín Helga Andrésdóttir.”

Tónlistarverk

Í flokknum tónlistarverk vann verkið Vesturbæjar-beach eftir Snæfríði Sól Gunnarsdóttur. Dómnefnd skipaði Árni Sveinsson, Ugla Hauksdóttir and Þóra Hilmarsdóttir. Snæfríður hlýtur 250 000 kr frá Tækjaleigunni KUKL og 250 000 kr peningaverðlaun frá Símanum.

Ummæli dómnefndar: “Vesturbæjar-beach is a funny and insightful look at the tropical paradise of Reykjavík’s westside. The story is simple and executed with humor, and sincere playfulness, with lots of surprises along the way. It perfectly captures the optimism and positivity it takes to live on our chilly island. The work of the filmmakers is a great example of what can be done when good ideas are executed with little means and the visual approach takes you on a journey that is a joy to experience from beginning to end.”

Heimildaverk

Í flokki heimildarverka var það Brávallargata 12 eftir Birnu Ketilsdóttur Schram. Dómnefndina skipuðu þau: Anni Ólafsdóttir, Emanuele Gerosa and Hrafnhildur Gunnarsdóttir. Verkefnið hlýtur 500 þúsund króna úttekt hjá tækjaleigunni KUKL og 500 þúsund króna peningaverðlaun frá Símanum. Eins og önnur vinningsverk mun verkið vera á dagskrá Síminn Sjónvarp og aðgengilegt í veitu Símans næstu 12 mánuði.

Ummæli dómnefndar: “A brave experiment where the simple single-shot setup reveals family secrets and dynamics to the audience. It both freezes time and acknowledges space rarely revisited when the director places them in front of the old family home. The concise form gives a glimpse of what was and what did not become. Honest and true portrait.”

Sérstaka tilnefningu hlaut myndin Step eftir Guðný Lind Þorsteinsdóttir.

Ummæli dómnefndar “A well-shot and formed documentary that goes beyond the surface. A beautiful portrait of a dancer contrasted with some of the dance business’s dark secrets. The brutal honesty exposes emotion and offers a solution, a way of survival without a whining tone or sentiment.”

Tilraunaverk

Í flokki tilraunaverka var það verkið Chrysalis eftir Eydísi Eir Brynju- Björnsdóttur sem hlaut sigur úr býtum. Dómnefnd skipuðu Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Sigurður Guðjónsson og Vera Sölvadóttir. Í verðlaun hlaut myndin 250 þúsund kr úttekt frá KUKL tækjaleigu og 250 þúsund króna verðlaun frá Símanum.

Ummæli dómnefndar: “Although experimental films explore non-narrative forms this particular film takes you on an orchestrated visual journey. The film is overflowing with beautiful imagery and colors, and a perfectly fitting set- and sound design. The personal voice-over narration gives the audience just enough to follow the intimate thoughts of the main character, gracefully accompanied by music. The editing and elements of mise-en-scene makes this an interesting film to watch.”

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR