Úkraínska kvikmyndin KLONDIKE opnunarmynd Stockfish

Kvikmyndahátíðin Stockfish verður sett í Bíó Paradís fimmtudaginn 24. mars og stendur til 3. apríl. Opnunarmyndin er hin úkraínska Klondike sem kom út fyrr á þessu ári og er þegar byrjuð að sópa til sín verðlaunum. Sýndar verða yfir 20 alþjóðlegar verðlaunamyndir og fjöldi erlendra gesta sækir hátíðina heim, bæði til að fylgja myndum sínum eftir og í tengslum við Bransadaga sem haldnir verða á Selfossi.

Dagskrá Bransadaga er hér.

Klondike vann til verðlauna bæði á Berlinale og Sundance kvikmyndahátíðunum fyrr á þessu ári. Myndin fjallar að miklu leyti um forsögu þess sem nú er að gerast þar í Úkraínu. Sögusvið myndarinnar er á tíma stríðsins á milli Úkraínu og Rússlands árið 2014 og fjallar um fjölskyldu sem býr á landamærunum milli landanna tveggja og neitar að flýja þótt þorpið þeirra sé yfirtekið af rússneskum hersveitum. Aðalleikona myndarinnar Oksana Cherkashyna verður viðstödd opnunarsýninguna og mun sitja fyrir svörum áhorfenda eftir sýningu.

My Year Of Dicks

Pamela Ribon og Sara Gunnarsdóttir verða viðstaddar frumsýningu teiknimyndaseríunnar „My Year Of Dicks“ sem er í leikstjórn Söru en skrifuð af Pamelu. Meðal þess sem Pamela hefur áður skrifað eru Disneymyndirnar Moana og Ralph Breaks the Internet.

Leikstjórar með spurt og svarað

Aðrir gestir eru meðal annars David Bonneville með mynd sína The Last Bath en hún var framlag Portúgals til óskarsverðlauna. Síðasta baðið fjallar um nunnu sem er kölluð aftur í heimabæ sinn til að ættleiða fimmtán ára frænda sinn. Með þeim takast ástir og mikil togstreita milli trúar, fjölskyldu og ástar hefst í kjölfarið.

Færeyingurinn Trygve Danielsen kemur í tengslum við mynd sína 111 góðir dagar; hún fjallar um tvo ólíka menn sem eru sífellt að rekast á hvorn annan við undarlegar aðstæður. Síðar komast þeir að því að það er ákveðið afl sem bindur þá saman. Það er ekki oft sem gefst tækifæri til að sjá færeyska mynd í fullri lengd en sú síðasta var framleidd árið 2014.

One More Jump! er heimildarmynd um tvo vini sem ólust upp á Gaza í Palestínu en saman stofnuðu þeir palestínskan parkour hóp. Sársauki og gremja ungra Palestínumanna á Gaza-svæðinu er sýnd í gegnum prisma parkour-teymis. Það er ítalski leikstjórinn Emunele Gerosa sem stendur á bak við myndina en hann hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir heimildarmyndagerð sína mun svara spurningum gesta eftir sýningu myndarinnar.

Leikstjóri Apples, Christos Nikou, er hokinn af reynslu í kvikmyndageiranum og hefur starfað sem aðstoðarleikstjóri í um 10 ára skeið m.a. í myndum á borð við Dogtooth og Before Midnight. Apples er hins vegar hans fyrsta leikstýrða mynd í fullri lengd og fjallar um mann sem missir minnið í kjölfar heimsfaraldurs og fer í endurhæfingu sem á að hjálpa honum að byggja upp nýtt líf.

Retrospective með Kleber Mendonca og Emilie Lesclaux

Hjónin Kleber Menonca Filho og Emilie Lesclaux verða gestir á Stockfish í tilefni af yfirlitssýningu þeim til heiðurs. Sýndar verða myndirnar Bacurau, sem áður hefur verið sýnd á Stockfish, Aquarius og Neighbouring Sounds. Allar hafa þessar myndir unnið til fjölda verðlauna.

Mendonca og Lesclaux eru meðal virtustu kvikmyndagerðarmanna latnesku Ameríku. Myndir þeirra hafa náð glæsilegum alþjóðlegum árangri og hlotið á annað hundrað viðurkenninga þar á meðal Cannes. Bæði munu þau sitja fyrir svörum eftir sýningu myndanna. Hann sem handritshöfundur og leikstjóri og hún sem framleiðandi.

Nothing Compares

Heimildamynd um feril söngkonunnar Sinead O‘Connor og hvernig uppreisnargjarn persónuleiki hennar varð til þess að henni var útskúfað úr „mainstream“ poppkúltúr. Leikstjóri myndarinnar er Kathryn Ferguson og er fókus myndarinnar á árin 1987 – 1992 í gegnum linsu nútíma augans.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR