Ný bók um tengsl ferðamennsku og kvikmyndagerðar á Íslandi

Útgáfu bókarinnar Iceland on Screen eftir Wendy Mitchell, verður fagnað í Bíó Paradís, föstudaginn 25. mars klukkan 15.00, með dagskrá um tengsl kvikmynda og sjónvarpsefnis við ferðamennsku á Íslandi.

Wendy Mitchell er fréttaritari Screen International á Norðurlöndum og hefur starfað sem ritstjóri og blaðamaður um langt skeið, fyrir miðla eins og Entertainment Weekly, indieWire og Rolling Stone. Iceland on Screen er hennar þriðja bók.

DAGSKRÁ

  • Wendy Mitchell segir frá bókinni Iceland on Screen.
  • Þorleifur Þór Jónsson, verkefnastjóri útflutnings og fjárfestinga hjá Íslandsstofu, ræðir hvernig kvikmyndir eru nýttar í kynningum gagnvart ferðaheildsölum.
  • Katarzyna Maria Dygul, verkefnastjóri markaðssamskipta hjá Íslandsstofu, fjallar um mælingar á áhrifum kvikmynda og sjónvarpsefnis á ákvörðun ferðamanna sem koma til landsins.
  • Guðrún Þórisdóttir, markaðsstjóri hjá Gray Line, segir frá skipulögðum ferðum tengdum kvikmyndum og sjónvarpsefni.
  • Sigríður Rósa Bjarnadóttir, formaður Félags kvikmyndagerðamanna, talar um gildi framangreindra verkefna fyrir hinn almenna kvikmyndagerðamann.

Boðið verður upp á léttar veitingar og gestir fá eintak af bókinni Iceland on Screen.

Kvikmyndamiðstöð Íslands, Íslandsstofa og Félag kvikmyndagerðarmanna standa fyrir dagskránni.

Hægt er að skrá sig hér.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR