18 alþjóðleg verðlaun til íslenskra kvikmynda 2020

Íslenskar kvikmyndir hlutu alls 18 alþjóðleg verðlaun á árinu 2020. Alls fengu 6 bíómyndir, 2 heimildamyndir og 4 stuttmyndir verðlaun á árinu.

Verðlaunin voru 33 árið 2019, 69 árið 2018, 79 árið 2017 og 71 árið 2016. 2015 voru verðlaun alls 102, 2014 voru þau 34 og 33 2013.

Hafa ber í huga að sökum heimsfaraldurs var fjölmörgum kvikmyndahátíðum frestað.

Verðlaun til íslenskra kvikmynda á árinu (miðað er við alþjóðlegar hátíðir, óháð staðsetningu)

Sjá má allar fréttir um verðlaun til íslenskra kvikmynda hér (hvar, hvenær, hverskonar verðlaun).

Hér að neðan er að finna samantekt á verðlaununum. 

BÍÓMYNDIR:

Bergmál (leikstjóri: Rúnar Rúnarsson)
Vann aðalverðlaun dómnefndar á kvikmyndahátíðinni Gyllti hrafninn sem fór fram dagana 9. – 15. mars í Anadyr í Rússlandi. Hlaut fyrir sérstök dómnefndarverðlaun á hinni árlegu kvikmyndahátíð í Gimli í Kanada, 22. – 26 júlí

Héraðið (leikstjóri: Grímur Hákonarson)
Var valin besta leikna kvikmyndin á FICMEC kvikmyndahátíðinni á Tenerife, 9. – 12. október.

Hvítur, hvítur dagur (leikstjóri: Hlynur Pálmason)
Ingvar E. Sigurðsson vann til verðlauna fyrir leik sinn á kvikmyndahátíðinni Premiers plans d’Angers sem fór fram í Angers í Frakklandi dagana 17. – 26. janúar. Vann aðalverðlaunin Talents prize á kvikmyndahátíðinni D’A Film Festival Barcelona á Spáni. Hátíðin var haldin í stafrænu formi dagana 30. apríl – 10. maí.

Last and First Men (leikstjóri: Jóhann Jóhannsson)
Hlaut FIPRESCI verðlaunin á Festival du Nouveau Cinéma de Montréal, 7. – 18. október, Kanada.

Tryggð (leikstjóri: Ásthildur Kjartansdóttir)
Andri Steinn Guðjónsson, klippari Tryggð , vann verðlaun fyrir bestu klippinguna á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Indian Cine í Mumbai þann 6. september.

Þorsti (leikstjórar: Gaukur Úlfarsson, Steinþór Hróar Steinþórsson)
Vann tvenn verðlaun, Geir Njarðarson fékk verðlaun fyrir brelluförðun (special effects make up) og Atli Þór Einarsson fékk verðlaun fyrir sjónrænar brellur (visual effects), á bandarísku hryllingsmyndahátíðinni Screamfest, sem fór fram dagana 6. – 15. október í Los Angeles.

HEIMILDAMYNDIR:

Humarsúpa (leikstjórar: Pepe Andreu og Rafael Molés) 
Vann til Mirades verðlaunanna fyrir bestu heimildamyndina á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni DocsValència sem fór fram dagana 10. – 19. desember.

Síðasta haustið (leikstjóri: Yrsa Roca Fannberg)
Hlaut sérstaka heiðursviðurkenningu dómnefndar (Honourable Mention) í flokki bestu norrænu heimildamyndar á stutt- og heimildamyndahátíðinni Nordisk Panorama, 17. – 27. september.

STUTTMYNDIR:

Animalia (leikstjóri: Rúnar Ingi)
Hlaut heiðursummæli dómnefndar í flokki íslenskra stuttmynda á RIFF – Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, 24. september – 4 október.

Já-fólkið (leikstjóri: Gísli Darri Halldórsson)
Hlaut verðlaun yngstu áhorfendanna (Children’s Choice Award) á stutt- og heimildamyndahátíðinni Nordisk Panorama, 17. – 27. september. Hlaut verðlaun sem besta evrópska stuttmyndin á Weird International Animation Film Festival, Spánn, 28. September – 4. október. Hlaut áhorfendaverðlaun á Uppsala Short Film Festival, Svíþjóð,19. – 25. október. Var valin besta norræna-baltneska stuttmyndin á Fredrikstad Animation Festival (FAF ), Noregur, 22. -25. október

Nýr dagur í Eyjafirði (leikstjóri: Magnús Leifsson)
Var valin besta norræna stuttmyndin á Minimalen stuttmyndahátíðinni í Þrándheimi í Noregi sem fór fram dagana 21. – 26. janúar.

Wilma (leikstjóri: Haukur Björgvinsson)
Vann til dómnefndarverðlauna á Flickerfest stuttmyndahátíðinni sem fór fram dagana 10. – 19. janúar í Sydney, Ástralíu. Var valin besta stuttmyndin í flokknum „Generator + 16“ á Alþjóðlegu barnakvikmyndahátíðinni í Giffoni á Ítalíu.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR