Þegar strákasveitin ICEGUYS villist óvart inn í alþjóðlegu raunveruleikakeppnina Battle of the Boybands, neyðast þeir til að keppa við aðrar strákasveitir til að tryggja sér opnunarpláss á tónleikaferðalagi goðsagnakenndrar hljómsveitar. En draumurinn reynist flóknari og hættulegri en þeir bjuggust við.
Með helstu hlutverk fara Aron Can, Árni Páll Árnason, Friðrik Dór, Jón Jónsson, Rúrik Gíslason (Iceguys), Sandra Barilli, Salóme Gunnarsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Sólmundur Hólm, Livia Matthes og hin þýska (starfandi) strákasveit Team 5unf með Jay Khan í fararbroddi.
Hannes Halldórsson, Allan Sigurðsson & Hannes Arason leikstýra. Ingimar Guðbjartsson, Allan Sigurðsson, Hannes Arason & Hannes Halldórsson framleiða fyrir Atlavík. Ásgrímur Guðbjartsson sér um kvikmyndatöku og Sylvía Lovetank um búningahönnun. Ísak Freyr Helgason & Salóme Ósk Jónsdóttir. sjá um gervahönnun. Klippingu annast Heimir Bjarnason og Jónas Þórhallsson. Tónlist gera Ágeir Orri Ásgeirsson & Kristján Sturla Bjarnason, Sólmundur Hólm & Hannes Halldórsson skrifa handrit.













