Morgunblaðið um ICEGUYS THE MOVIE: Vel gerð vitleysa

Díana Sjöfn Jóhannsdóttir skrifar í Morgunblaðið um Iceguys The Movie. og segir hana meðal annars klóka og skemmtilega vitleysu.

Díana skrifar meðal annars:

Það er erfitt að líta á kvikmyndina um IceGuys sem sjálfstæða einingu. Hún lifir í samhljómi með seríunum þremur og lýtur að sjálfsögðu þeim lögmálum sem hafa verið lögð til grundvallar þar. Það er því nokkuð nauðsynlegt að hafa horft á seríurnar og vera með nokkuð gott menningarlæsi til að njóta sem best. Söguheimurinn hefur verið vel upp byggður og hafa töfrarnir falist í því hversu óhræddir þeir eru við að ýkja eigin persónuleika, gera grín að sjálfum sér og lesa í og varpa ljósi á íslenska dægurmenningu í víðum skilningi. Gullna gæs þáttanna hefur einmitt verið hvernig þeir vísa í raunverulega atburði úr íslenskum samtíma.

Á heildina litið er IceGuys – The Movie þrusugóð skemmtun og býður upp á bæði hlátur og mikinn hasar. Tónlistin er ennþá virkilega grípandi en líka notaleg í einfaldleika sínum sem og í glettni.

Ofanrituð stóð sig að því í bíósalnum að tauta í barm sér „þetta er nú meiri vitleysan“, og hlæja á sama tíma. En það er einmitt það sem IceGuys byggist á. Vitleysa. En það er virkilega góð vitleysa, klók og skemmtileg. Vitleysa með viti. Og það eru einmitt klókindin sem skipta öllu máli hér, hvernig skopstæling á eigin sjálfi og landi spila saman við menningarlæsi og hugrekki. Handritshöfundarnir Hannes Þór Halldórsson og Sólmundur Hólm eiga mikið hrós skilið fyrir.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR