Magnús skrifar meðal annars:
Strákasveitin Iceguys hefur tekið stökkið úr sjónvarpinu yfir á stóra skjáinn með skemmtilegri fjölskyldumynd með slatta af aulahúmor, sterkum aukaleikurum og spennandi lokahnykk. Strákarnir takast á við hrokafulla Þjóðverja, vondan móral og alvarlegar ásakanir. Keyrt er áfram á sömu formúlunni, sem er ágæt til síns brúks, og úr verður fínasti endir á sögu Ísgæjanna, þó dálítið væminn sé.
Iceguys: The Movie er beint framhald af því sem á undan kom, hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Sagan er einföld og á köflum heldur barnaleg en það er allt í lagi, þetta er fyrst og síðast kvikmynd fyrir börn.
Fýlupúkar verða ekki sannfærðir enda er þetta ekkert meistaraverk og viss endurtekning á sömu formúlunni. Hægt er að setja út á ójafna framvinduna, senur sem virka á mann sem uppfylliefni og fullmikla væmni undir rest.
Stemmingsmenn munu þó geta skemmt sér yfir aulagríni, nokkrum yfirgengilega fyndnum bröndurum og frábærum lokahnykk með bílaeltingaleik, slagsmálum og töfrum. Gagnrýnandi gerði einmitt það með góðum vini, nachosi og stóru gosi.
Iceguys: The Movie verður sennilega aldrei Með allt á hreinu vorra daga líkt og leikstjórinn Hannes Þór vonaðist til en hér er samt á ferðinni hörkufín fjölskyldumynd sem dregur fólk í bíó.













