RVK Feminist Film Festival hefst 14. janúar, myndir sýndar ókeypis á netinu

Alþjóðlega kvikmyndahátíðin RVK Feminist Film Festival (RVK FFF) verður haldin í annað sinn dagana 14.-17. janúar. Vegna Covid verður hátíðin á netinu en valdir viðburðir verða í boði innan sóttvarnatakmarkana. Hægt er að horfa á allar kvikmyndirnar ókeypis á https://rvkfemfilmfest.is dagana sem hátíðin stendur.

Líkt og í fyrra verða á boðstólnum kvikmyndaverk eftir konur hvaðanæva að úr heiminum; Frakklandi, Þýskalandi, Íslandi, Egyptalandi, Kýpur, Portúgal, Ísrael, Ástralíu, Noregi og fl. Auk þessa verða viðtöl og panelar ásamt Q&A á vef hátíðarinnar.

Áhersla á sýnileika LGBTQI+ samfélagsins

Aðal áherslan í ár er á að tengjast Trans Ísland, Samtökunum ’78 og Intersex Ísland og þar með auka sýnileika LGBTQI+ samfélagsins á Íslandi og erlendis.

„Við ætlum að sýna feminískar kvikmyndir og leggja áherslu á kvikmyndir sem eru öðruvísi, með fjölbreyttum kvenhlutverkum og karakterum sem gefa okkur tækifæri til að umbylta fyrirsjáanlegum kynjamiðuðum normum. Fyrir okkur fjallar feminísmi um jafnrétti fyrir alla“, segir Lea Ævars hátíðarstjóri RVK FFF. „Því miður er raunveruleikinn ekki endurspeglaður í kvikmyndum og sjónvarpi heimsins þar sem kvikmyndabransinn er mjög karllægur. Vissulega er þetta að breytast hægt og rólega en eins og staðan er núna þá er langt í land með að konur, kynsegin fólk og fjölmenning sé sýnd í “mainstream” miðlum. Kvikmyndamiðilinn er ótrúlega sterkur áhrifavaldur í lífi fólks og einmitt þess vegna er RVK Feminist Film Festival svo mikilvæg hátíð og með því að auka sýnileika kvikmynda sem endurspegla raunveruleikann erum við að búa til fyrirmyndir og bylta staðalímyndum sem heyra vonandi bráðum sögunni til.”

HELSTU VERK

Opnunarmyndin PORT AUTHORITY

Lucie Samcová Hall Allen, sendiherra ESB á Íslandi mun opna hátíðina með netskilaboðum þann 14. janúar. Opnunarmyndin í ár er Port Authority, í leikstjórn Danielle Lessovitz. Kvikmyndin er áköf ástarsaga sem gerist í kiki ballroom senunni í New York og neyðir aðalpersónuna, Paul, til að takast á við eigin sjálfsmynd og hvað það þýðir að tilheyra þegar hann uppgötvar að Wye, 22 ára stúlkan sem hann varð ástfanginn af, er transkona.

Örserían NORMS

Aðalnýjungin í ár verður frumsýning á glænýrri örseríu, Norms, úr smiðju “The Lost Shoe Collective”. Serían er tekin upp bæði í Reykjavík og Berlín og varpar ljósi á daglegar raunir yngri kynslóðarinnar sem oftar en ekki er horft framhjá.

Myndir frumkvöðulsins Alice Guy

Í samstarfi við Alliance Française, Franska sendiráðið og Institut Français, verða sýndar 13 stuttmyndir (framleiddar á árunum 1898 til 1907) eftir fyrsta kvenleikstjóra frásagnarmynda í kvikmyndasögunni, Alice Guy. Stuttmyndirnar verða sýndar í höfuðstöðvum Alliance Française en farið verður eftir sóttvarnarreglum í hvívetna.

Eftir stuttmyndirnar verður Q&A þar sem franska kvikmyndagerðarkonan Clarisse Charier mun ræða við Véronique le Bris en hún er stofnandi cine-woman.fr, fyrsta kven-vefritsins um kvikmyndahús.

PAUSE og pallborðið No Woman Alone

Pause í leikstjórn Tonia Mishiali verður sýnd í samstarfi við Sendiráð Kýpur. Kvikmyndin fjallar um heimilisofbeldi og segir frá veruleika konu sem er föst í kúguðu hjónabandi. Í tengingu við þessa mynd verður streymt beinum pallborðsumræðum um ofbeldi í nánum samböndum. Þar verður málefnið tekið fyrir á fræðilegum, pólitískum og feminískum grundvelli, rætt verður við fólk sem hefur verið áberandi þegar kemur að umfjöllun um heimilisofbeldi/ofbeldi í nánum samböndum. Þessi viðburður, “No Woman Alone” fer fram laugardaginn 16 janúar. Fylgist vel með á samfélagsmiðlum.

„Við vonumst til að umræðupallborðið okkar “No Woman Alone” nái að opna augun á fólki og skapa snjóboltaáhrif langt umframkvikmyndahátíðina,” segir Nara Walker verkefnisstjóri hátíðarinnar. “Sérstaklega á þessum tímum sem við erum að upplifa núna, þegar margir eru án ástvina sinna, vina eða félaglegs tengslanets þá geta kvikmyndir verið okkur mikilvægur félagsskapur í einveru. Dagskráin okkar er mjög fjölbreytt og hugsuð til að gleðja og hlýja hug og hjörtu okkar á þessum erfiðu tímum. Með því að hafa hátíðina á netplatformi opnast möguleiki á því að ná til hóps sem við venjulega náum ekki til í kvikmyndahúsum.“

Verk Lene Berg í Norræna húsinu

Kvikmyndahátíð Norræna hússins, Nordic Film Focus er aftur í samstarfi við RVK FFF þetta árið. Norska kvikmyndagerðarkonan og listakonan, Lene Berg, er fókus þeirra í ár. Sýnd verða sex kvikmyndaverk eftir hana en verk hennar byggja hvorki á fyrirframgefnum hugmyndum né viðteknum gildum, þau eru beitt, fyndin og óháð normum samfélagsins.

Lokamyndin LIFT LIKE A GIRL

Lokamynd RVK FFF verður heimildamynd frá Egyptalandi, Lift like a Girl. Kvikmyndagerðarkonan Mayye Zayed fylgir Zebiba, ungri stúlku í gegnum fyrstu fjögur ár hennar á keppnisvettvangi lyftinga. Fáum að fylgjast með Zebiba vaxa úr grasi og sjá hvaða fórnir hún þarf að færa til að ná lengra á þessari íþrótt. Hún notar þann missi og sársauka til að hvetja sig áfram til að verða betri íþróttakona og sterkari manneskja.

Stuttmyndasamkeppnin SYSTIR

Stuttmyndakeppni hátíðarinnar kallast SYSTIR og verða verðlaunahafar kynntir á lokadegi hátíðarinnar 17. janúar. Dómararnir í ár eru Guðrún Ragnarsdóttir, Tinna Hrafnsdóttir og Guðrún Elsa Bragadóttir. Veitt verða verðlaun í 4 flokkum: Besta tilraunakennda stuttmyndin, besta heimildamyndarstuttmyndin, besta frásagnarstuttmyndin og besta Covid-19 stuttmyndin.

Verðlaunagripirnir eru gerðir af listakonunni Claire Paugam en hún er stjórnarmaður í Nýlistasafni Reykjavíkur og hlaut Hvatningarverðlaunin frá Íslensku listaverðlaununum árið 2020 fyrir öflugt framlag sitt til myndlistar.

HEIÐURSGESTUR

Heiðursverðlaunahafi hátíðarinnar í ár er Halla Kristín Einarsdóttir kvikmyndagerðarkona en hún hefur gert kvikmyndir á borð við Konur á rauðum sokkum og Hvað er svona merkilegt við það. Halla Kristín gerði fyrstu kvikmyndina um transgenderisma á Íslandi, Transplosive (2006) og verður hún sýnd á hátíðinni.

Halla Kristín Einarsdóttir.

PALLBORÐ OG NÁMSKEIÐ

Zoom – pallborðsumræður um birtingarmynd LGTBQI+ samfélagsins í sjónvarpi og kvikmyndum með Samtökunum ‘78, Trans Ísland og Intersex Ísland verða sunnudaginn 17. janúar með þátttöku heiðursverðlaunahafa hátíðarinnar, Höllu Kristínar Einarsdóttur.

Zoom umræðupanell tileinkaður kvikmyndatökukonum fer fram á hátíðinni.

Fabúlera – Short Film Script Lab með Gabrielle Kelly í fararbroddi verður á ZOOM, en annað bandarískt kvikmyndafólk mun einnig koma þar að. Þær sem komast inn í Fabúlera fá síðan einkatíma með Gabrielle á Zoom til að vinna að handritinu sínu. Pælingin er síðan að halda vinnustofu í raunheimum þegar Covid er farið á brott næsta sumar. Gabrielle Kelly mun þá koma og vinna með stelpunum í eigin persónu.

Vefur hátíðarinnar er hér.

 

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR