Aðsókn | AMMA HÓFÍ yfir sextán þúsund gesti eftir fjórðu helgi

Amma Hófí er í áfram fyrsta sæti aðsóknarlistans eftir fjórðu sýningarhelgi með vel yfir sextán þúsund gesti. Síðasta veiðiferðin er í fimmta sæti og er að detta í 33 þúsund gesti.

2,657 sáu Ömmu Hófí í liðinni viku, en alls hefur myndin fengið 16,356 gesti eftir fjórðu sýningarhelgi.

1,078 sáu Síðustu veiðiferðina í vikunni. Eftir 22. sýningarhelgi (þar af sextán helgar í sýningum) nemur heildarfjöldi gesta 32,974 manns.

Reikna má með því að síðar í mánuðinum hafi fleiri séð þessar tvær myndir samanlagt en nam allri aðsókn á íslenskar bíómyndir í fyrra.

15 sáu Mentor í vikunni, en alls hafa 606 séð hana eftir sjöttu helgi.

ATH: Kvikmyndahúsin lokuðu þann 24. mars vegna kórónaveirufaraldursins og opnuðu aftur 4. maí.

Aðsókn á íslenskar myndir 27. júlí - 2. ágúst 2020

VIKURMYNDAÐSÓKNALLS (SÍÐAST)
4Amma Hófí2,65716,356 (13,699)
22Síðasta veiðiferðin1,07832,974 (31,896)
6Mentor15606 (591)
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR