Greining | Áhorf á íslenskt efni í sjónvarpi 2018

Hér er listi yfir áhorf á íslenskar bíómyndir, heimildamyndir, stuttmyndir og leikið sjónvarpsefni í sjónvarpi árið 2018.

Um aðferðafræðina

Tölurnar eru byggðar á áhorfsmælingum Gallup sem framkvæmdar eru daglega árið um kring. Birtar eru áhorfstölur í prósentum og fjölda áhorfenda. Á bakvið hvert prósent eru 2.420 manns á aldrinum 12-80 ára. Tölurnar innihalda allt áhorf, þar með talið svokallað hliðrað áhorf (Sarpur, tímaflakk, VOD ofl.)

Um öll verk gildir að ef verk er endursýnt á árinu er áhorf á fyrstu og aðra sýningu (og fleiri eftir atvikum) lagt saman.

Þegar verk birtist í tveimur þáttum eða fleiri er birt meðaláhorf. Það er reiknað þannig að áhorfstölur hvers þáttar fyrir sig eru lagðar saman og deilt í með fjölda þátta.

Hafa ber í huga að útleggingar mælinga eru mismunandi eftir eðli verka.

Bíómyndir eru (oftast) sýndar í heilu lagi og því er um heildaráhorf að ræða. Þó eru þær í sumum tilfellum sýndar oftar en einu sinni á árinu og þar er því áhorf á báða sýningartíma lagt saman.

Heimildamyndir eru stundum stakar en stundum í þáttaröðum. Gerð er grein fyrir þessu með hvert verk og því ýmist um heildaráhorf eða meðaláhorf á þátt að ræða eftir atvikum.

Leikið sjónvarpsefni er yfirleitt sýnt í nokkrum þáttum og að auki gjarnan endursýnt og því er þar sagt frá meðaláhorfi á þátt.

Stuttmyndir eru sýndar í heilu lagi og því um heildaráhorf að ræða.

Endursýningum á eldri verkum er sleppt.

Einnig er rétt að benda á að sumar tölur eru námundaðar, á það sérstaklega við um verk sem sýnd eru í bútum (með auglýsingahléum) en nokkuð flókið er að finna út hárnákvæmt áhorf á slíkar sýningar. Tölurnar eru þó nærri lagi.

Verði lesendur varir við villur er hægt að koma ábendingum á framfæri hér.

Ófærð 2 (fyrstu tveir þættirnir) fékk mest áhorf leikinna þáttaraða 2018.

Áhorf á leikið sjónvarpsefni 2018

HeitiStöðFjöldi þáttaFjöldi sýningaÁhorf%Áhorfendur
Ófærð 2 **RÚV2151 123,420
Flateyjargátan *RÚV4229.6 71,632
Mannasiðir *RÚV2125.1 60,742
Víti í Vestmannaeyjum - Sagan öll *RÚV6218.7 45,254
* Meðaláhorf á þátt, samanlagt áhorf (með endursýningum) | ** Meðaláhorf á þátt, aðeins tveir fyrstu þættirnir
Undir trénu fékk mest áhorf íslenskra bíómynda í sjónvarpi 2018.

Áhorf á íslenskar bíómyndir 2018

HeitiStöðFjöldi þáttaFjöldi sýningaÁhorf%Áhorfendur
Undir trénuRÚV1131 75,020
EiðurinnRÚV1128.6 69,212
Lói - þú flýgur aldrei einnRÚV1115.5 37,510
AlbatrossRÚV1112.4 30,008
Vetrarbræður (Vinterbrødre)RÚV116 14,520
Fullir vasarStöð 2114.3 10,406
Reynir sterki fékk mest áhorf heimildamynda í sjónvarpi 2018.

Áhorf á íslenskar heimildamyndir 2018

HeitiStöðFjöldi þáttaFjöldi sýningaÁhorf%Áhorfendur
Reynir sterki **RÚV1234.5 83,490
Maður sviðs og söngva ***RÚV2231.5 76,230
Lof mér að lifa **RÚV2128.9 69,938
Varnarliðið ***RÚV4222.7 54,934
15 ár á Íslandi **RÚV1221.1 51,062
Fullveldisöldin ***RÚV10120.8 50,336
Jól í lífi þjóðar **RÚV1219.2 46,464
Kaupmannahöfn - Höfuðborg Íslands ***RÚV5218.9 45,738
Undir yfirborðinu **RÚV1215.4 37,268
Eigi skal höggvaRÚV1113.2 31,944
BaskavíginRÚV1112.3 29,766
Island Songs **RÚV127.3 17,666
**Samanlagt áhorf. | *** Meðaláhorf á þátt, samanlagt áhorf (með endursýningum)
Myndin af mér fékk mest áhorf stuttmynda í sjónvarpi 2018.

Áhorf á íslenskar stuttmyndir 2018

HeitiStöðFjöldi þáttaFjöldi sýningaÁhorf%Áhorfendur
Myndin af mérRÚV119.5 22,990
ÁrtúnRÚV118.7 21,054

 

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR